„Eru fjarvinnuteymi framtíðin?” : hvað með upplifunina, traustið og samskiptin, eru þeir þættir enn til staðar?
Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Vinna í fjarvinnuteymum er í örum vexti á vinnumarkaðinum í dag og fleiri fyrirtæki og stofnanir að nýta sér þennan möguleika í verkefnavinnu. Rannsóknir hafa sýnt að traust er talið vera lykilþáttur að farsælu samstarfi innan teyma en fyrir fjarvinnuteymi reynist þessi \nþáttur oft erfiður. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða hvort traust ríkti innan teymis hjá einstaklingum í fjarvinnu og hvort þetta fyrirkomulag hefði áhrif á ánægju teymismeðlima. Einnig var rýnt í helstu kosti og áskoranir sem fjarvinnuteymi glímdu við. \nRannsóknin var eigindleg og var notuð tilgangsúrtaksaðferð til að finna viðmælendur. Tekin voru viðtöl við sjö einstaklinga víðsvegar af vinnumarkaðinum. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að fjarvinna hefur áhrif á ánægju einstaklinga í teymisvinnu en ein ástæða þess er \nskortur á félagslegum tengslum. Helstu áskoranir í fjarvinnuumhverfi töldu þátttakendur vera að halda samskiptaflæðinu gangandi og skapa góða hugmyndavinnu. Gott traust var innan þeirra teyma sem þátttakendur störfuðu í og mikil ánægja ríkti með fjarvinnufyrirkomulagið.
Source: Skemman
Author: Dagný Hermannsdóttir 1985-
Language: Icelandic
Subfield: Social Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7000131529
