Work

„En hvaðan ertu?“ Upplifun brúnna Íslendinga á því að tilheyra íslensku samfélagi

Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Ritgerðin byggir á rannsókn sem fjallar um upplifun 15 Íslendinga af blönduðum uppruna (e. ‘mixed-race’) af því að tilheyra íslensku samfélagi. Reynsla þeirra var skoðuð í tengslum við íslenska þjóðarsjálfsmynd og öðrunarferli sem þau mættu fyrir að vera \nmeð dekkra litarhaft en meginþorri landsmanna. Rannsóknin er byggð á 15 \neinstaklingsviðtölum þar sem grunduð kenning var notuð við greiningu á gögnum og leitað var eftir þemum, með aðstoð kóðunar. Þrjú þemu komu fram og fjögur undirþemu en þau eru; a) fjölbreytileiki í íslensku samfélagi, b) skilgreiningin á Íslendingi, c) tungumálakunnátta, d) ímynd Íslands út á við, e) öðrunarferli, f) kynjuð \nkynþáttahyggja - og fordómar, g) rasísk hugtök í íslensku samfélagi. Helstu niðurstöður sýna fram á að viðmælendur voru meðvitaðir um að standa út úr í íslensku samfélagi og upplifðu þar ýmiss konar forvitni í sinn garð en konur þó í meiri mæli en karlmenn. Einnig sýndu niðurstöður fram á að þó svo einstaklingur sé einnig með erlendan \nbakgrunn sé hann ekki minni Íslendingur fyrir vikið.
Source: Skemman
Author: Sanna Magdalena Mörtudóttir 1992
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7000235848
Cites: 91
Cited by:
Related to: 10