Handbók með leiðbeiningum um framkvæmd á viðeigandi afkastamælingum á einstaklingum með geðrofssjúkdóma : leiðbeiningar fyrir íþróttafræðinga á geðheilbrigðissviði
Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Verkefnið fjallar um viðeigandi mælingar fyrir einstaklinga með geðrofssjúkdóma og var unnið á vorönn 2023 við Háskólann í Reykjavík. Geðrofssjúkdómar eru margskonar og eru til ýmsar gerðir af þeim sem hrjá milljónir manna um allan heim. Stór hluti einstaklinga með geðrofssjúkdóma glíma við margþætt heilsufarsvandamál sem tengd eru við styttri líftíma. Til \neru fjölbreyttar mælingar til að meta heilsufarsástand einstaklings sem gefa tilkynna um hvort þörf sé á lífstílstengdu inngripi. Mikil þörf er á að gera slíkar mælingar hérlendis og þar sem íþróttafræðingar innan geðheilbrigðiskerfisins er tiltölulega ný stétt er kjörið tækifæri á að nýta þá stétt til að framkvæma þær mælingar. Markmið höfunda er að hjálpa til með leiðbeiningar \num hvernig skal framkvæma viðeigandi afkastamælingar og sýna fram á hvers vegna þær séu mikilvægar.
Source: Skemman
Authors: Andrea Mist Pálsdóttir 1998-, Þórdís Todda Baldursdóttir 1997-
Institution: Reykjavík University
Language: Icelandic
Subfield: Applied Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7000625227
