Work

Hefur þú prófað ChatGPT?

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Gervigreind! Orðið vekur ýmist óhug eða áhuga hjá fólki og þegar fjölmiðlar útlista áhyggjum skóla um allan heim að trúverðugleiki menntunar sé í húfi vegna málgreindar spunagreindarinnar ChatGPT ræður hræðslan ríkjum. Gripið var í að setja próf upp sem munnleg próf í ýmsum Skandinavískum skólum og efast var um skil nemenda á heimaprófum og verkefnum. \nTilgangur þessarar rannsóknar var að kanna notkun nemenda, á efri menntastigum á Íslandi, á ChatGPT sem aðstoð við nám. Einnig var skoðað hversu mikið traust nemendur hafa á svörum og tillögum spunagreindarinnar ásamt skoðun nemenda á aukinni fræðslu þess. Rannsakað var með megindlegri rannsóknaraðferð og send út spurningakönnun á nemendur háskóla og framhaldsskóla. \nNiðurstöður sýndu fram á fjölbreytta notkun en þó aðallega til upplýsingaöflunar, þankahríð (e.brainstorming) og aðstoð við ýmsa verkefnavinnu. Einnig sýndu niðurstöður að nemendur virtust annað hvort bera mikið traust til ChatGPT eða ekki hafa næga þekkingu til að svara af eða á. Þorsti nemenda er í aukna fræðslu á því hvernig notkun geti verið áhrifarík sem aðstoð við nám og má álykta að nemendur vilji að framtíðarnám og kennsla beri með sér tæknina að vopni.
Source: Skemman
Author: Katrín Pálsdóttir
Institution: Bifröst University
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7000791488
Cites: 13
Cited by:
Related to: 8