Hvatning starfsmanna í þremur útibúum Íslandsbanka
Year: 2014
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Þessi ritgerð fjallar um hvatningu starfsmanna og er markmið ritgerðarinnar að kanna hvaða hvataþættir það eru sem hafa mest hvetjandi áhrif á starfsmenn í þremur útibúum Íslandsbanka. Hvatning eru ákveðnir þættir sem verða til þess að einstaklingar hegða sér á ákveðinn hátt og hvatning hreyfir við manneskjum til að framkvæma. Hvatning starfsmanna hefur áhrif á starfsánægju og starfstengd hvatning hvetur starfsmann til þess að standa sig betur í starfi og auka afköst sín. Hvatning getur verið af mismunandi toga þannig að hún feli annaðhvort í sér innri eða ytri hvata. \nFramkvæmd var megindleg rannsókn þar sem þátttakendur voru annars vega beðnir um að taka afstöðu til að hve miklu leyti ákveðnir hvataþættir skipta þá máli í starfi og hins vegar að raða ákveðnum hvataþáttum í röð eftir því hversu hvetjandi áhrif þeir hafa á þátttakendur. Spurningalisti var lagður fyrir starfsmenn í útibúum Íslandsbanka á Eiðistorgi, Kirkjusandi og í Kringlunni og svöruðu 35 starfsmenn. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að áhugavert starf er sá hvataþáttur sem virðist hafa mest hvetjandi áhrif á starfsmenn í útibúunum þremur og hvataþátturinn að starfið feli í sér ábyrgð virðist hafa minnst hvetjandi áhrif.
Source: Skemman
Author: Sólveig Halldórsdóttir 1990
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7000970804
