Hegðunartruflanir hjá íbúum hjúkrunarheimila með heilabilunarsjúkdóm: Hjúkrunargreiningum og -meðferð varpað yfir í ICNP
Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Bakgrunnur: Heilabilun er heilkenni eða ástand sem einkennist af hrörnun eða truflun á minni, hugsun og hegðun og hefur áhrif á getu einstaklinga til að framkvæma daglegar athafnir. Sjúkdómar sem valda heilabilun eru vaxandi vandamál í heiminum en fjöldi tilfella fer sífellt vaxandi. Eitt af aðaleinkennum heilabilunarsjúkdóma eru hegðunartruflanir, það eru athafnir, hegðun eða hugsunarháttur sem telst óeðlilegur eða ekki í samræmi við aðstæður. Reynast þær einstaklingunum sjálfum, aðstandendum þeirra og umönnunaraðilum yfirleitt mjög erfiðar. \nMarkmið: Í verkefninu var leitast eftir því að kanna hvaða hegðunarvandamál eru til staðar hjá íbúum hjúkrunarheimila með heilabilunarsjúkdóm og hvaða gagnreynda hjúkrunarmeðferð er nýtt til að meðhöndla þessi vandamál. Jafnframt var athugað hvort þau hugtök sem eru til staðar í ICNP lýsi hegðunartruflunum og hjúkrunarmeðferð nægilega. \nAðferðir: Valin voru hugtök sem ná yfir hjúkrunarmeðferð og hegðunartruflanir sem lýst var í heimildum. Var hugtökunum síðan varpað yfir í flokkunarkerfið ICNP til að kanna hvort þau hugtök sem er nú þegar til staðar séu nægilega yfirgripsmikil til notkunar eða hvort skortur sé á hugtökum. Nýtt var fjögurra þrepa flokkun til að meta gæði og samsvörun þeirra hugtaka sem fundust, eða fundust ekki, í ICNP. \nNiðurstöður: Samtals fundust 18 hegðunartruflanir og út frá þeim myndaðar 50 hjúkrunargreiningar og 45 möguleikar á hjúkrunarmeðferð. Hlutfallslega tilheyrðu flestar hegðunartruflanir og hjúkrunargreiningar truflun á atferli en algengast var að hugræn meðferð væri notuð til meðferðar. Vörpunin sýndi fram á að hlutfallslega vörpuðs flestar hjúkrunargreiningarnar fullkomlega en hinsvegar virtist hjúkrunarmeðferð yfirleitt varpast að hluta til. \nÁlyktun: Meðferð hegðunartruflana verður að vera einstaklingsbundin og samþætt. Þörf er á frekari rannsóknum á hvaða tegund meðferðar henta hvaða tegund hegðunartruflunar.
Source: Skemman
Authors: Hanna Mjöll Þórsdóttir 1993-, Lilja Dís Pálsdóttir 1994-
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Psychiatry and Mental health
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7000979994
