Work

Hver er ávinningur af framhaldsnámi í viðskiptafræði? Er ávinningurinn í samræmi við væntingar?

Year: 2013
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Megin niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að 88,5 % þátttakenda eru mjög eða frekar sáttir við ávinning sinn af framhaldsnámi í viðskiptafræði. \n \nUm 87% þátttakenda telja framhaldsnámið skili auknu sjálfstrausti í starfi og 72% þátttakenda telja að framhaldsnám í viðskiptafræði auki þekkingu og hæfni í starfi, 64% þátttakenda telja námið auka samkeppnishæfni í starfi og um 76% þátttakenda að námið auki samkeppnishæfni í leit að nýju starfi. \n \nNiðurstöðurnar bera ekki með sér að þátttakendur telji að framhaldsmenntun leiði almennt til aukinna möguleika á stöðuhækkunum hjá sama fyrirtæki, einungis um fjórðungur þátttakenda eru þeirrar skoðunar, heldur telja fleiri að framhaldsmenntun geti skapað möguleika á nýju starfi hjá öðru fyrirtæki. \n \nÞá telja þátttakendur að framhaldsnámið gefi almennt möguleika á betur launuðu starfi og ríflega fjórðungur metur launalegan ávinning sinn 25% eða meiri. \n \nÍ ljós kom að um marktækan mun milli kynja var að ræða varðandi það hvern þátttakendur töldu vera ávinning sinn af framhaldsnámi en karlar fremur en konur telja námið aukna samkeppnishæfni í núverandi starfi og karlar telja frekar en konur að námið hafi áhrif á möguleika til stöðuhækkana hjá núverandi vinnuveitanda. \n \nBæði kyn eru þó einhuga um að framhaldsnámið hafi aukið hjá þeim þekkingu og hæfni, samkeppnishæfni í leit að nýju starfi, gefi þeim aukið sjálfstraust í starfi og betur launað starf.
Source: Skemman
Author: Örn Leós Stefánsson 1954
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7000982072
Cites: 11
Cited by:
Related to: 10