Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Meginmarkmið verkefnisins er að kynna fyrir fólki þá þætti sem þarf að hafa í huga þegar leitað er að einkaþjálfara. Margskonar menntun og námskeið eru í boði hér á landi til þess að verða einkaþjálfari og verður gerður samanburður á þeim. Farið er yfir starfssvið hjá einkaþjálfurum, hvað tilheyrir og hvað ekki. Áhugahvöt og markmið eru mikilvæg fyrir einkaþjálfun og einkaþjálfarar eru mikilvægir hvetjendur skjólstæðinga sinna að velgengi. Tískutrend og söluvörur eru einnig stór þáttur í samfélaginu í dag og kannað er hvernig einkaþjálfun er sem söluvara. Í lok ritgerðar er bæklingur sem fer yfir alla þá þætti sem þarf að hafa í huga þegar einstaklingar eru að velja sér einkaþjálfara og er gerður samanburður á menntun einkaþjálfara hér á landi. Það að velja sér einkaþjálfara er persónubundið fyrir einstaklinginn og er markmið bæklingsins að varpa fram þeim atriðum sem vert er að hafa í huga við val á einkaþjálfara.
Source: Skemman
Authors: Mikael Uni Karlsson Brune, Sólveig Svava Hlynsdóttir
Institutions: Reykjavík University, University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Keywords: single parents, career aspirations
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7001107594
