Work

Íslensk þroskaviðmið : mikilvægi þroskaskimunar og eftirfylgni á þroska barna yngri en átta ára

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Hvers vegna þarf að veita þroska ungra barna eftirfylgni? Hvernig má hlúa að og styðja við þroska ungra barna á aldrinum 0 til 8 ára. Fjallað er um skimunartæki sem stuðst er við á Íslandi og hefðbundnu þroskaeftirliti gerð skil. Ritgerðin styðst einnig við kenningar Bronfenbrenner og Vygotsky þar sem áhrifaþættir á þroska eru til umfjöllunar. Fjallað er um rannsóknir sem sýna fram á mikilvægi þess að mælitæki fyrir þroska séu menningarnæm og auðveld í notkun fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Rannsóknir hafa sýnt að félagslegar aðstæður hafi áhrif á þroska barna snemma á ævinni, en tengsl móður og umönnunaraðila hafa mikil áhrif á þroska ungra barna. Samfélög hafa smám saman þróað með sér áætlanir fyrir þroskaeftirlit en mælitæki taka mið af staðsetningu og menningu þar sem lönd utan vestrænna ríkja þurfa gjarnan að styðjast við aðra þætti. Samspil umhverfis og erfða ásamt verndandi þáttum á mótunarárum eru meðal lykilþátta í þroska ungra barna. Með hefðbundnu þroskaeftirliti má styðja við og ýta undir sem bestan þroska ásamt því að tryggja börnum aukin lífsgæði. Hefðbundið þroskaeftirlit nýtist einnig sem stuðningur við nýja foreldra og mætir áhyggjum þeirra með sértæku mati fagaðila á þroska barns þeirra og snemmtækri íhlutun.
Source: Skemman
Authors: Hafrún Hafþórsdóttir, Kristjana Dögg Hafþórsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7001263983
Cites: 20
Cited by:
Related to: 10