Íslensk taugaþáttunarpípa: Þjálfun, mat og afurðir
Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Miklar framfarir hafa orðið á sviði máltækni síðustu áratugi samfara almennri tækniþróun. Tungumál eru misvel búin að þessu leyti en mjög breytilegt er hversu mikið af máltæknitólum og -gögnum er til fyrir einstaka tungumál. Síðasta áratuginn hefur íslenskum máltæknitólum farið fjölgandi og nákvæmni þeirra aukist en enn hefur ekki verið gefinn út þáttari sem skilar djúpri þáttun með mikilli mældri nákvæmni. \nÍ þessari ritgerð er þróun, mati og afurðum nýrrar íslenskrar þáttunarpípu lýst. Pípan tekur inn hreinan íslenskan texta og skilar af sér þáttaðri hliðstæðu hans, en með slíkri pípu verður þáttun aðgengileg fyrir stærri hóp fólks en ella. Pípan sér um að forvinna, þátta og eftirvinna textann og notendur þurfa þannig ekki að vinna textann frekar. Pípan inniheldur taugaþáttara en notkun tauganeta hafa bætt þáttunarlíkön auk þess sem þáttarinn er hraðvirkur og gerir því þáttun umfangsmikils texta fýsilega. Uppbyggingu þáttunarpípunnar er lýst sem og þjálfun taugaþáttarans og niðurstöðum þeirrar þjálfunar. Þá er tveimur afurðum þáttunarpípunnar lýst, tveimur nýjum trjábönkum sem samanstanda samtals af um 525 milljónum orða. Allar afurðir þessarar vinnu eru gefnar út með opnu leyfi og geta þannig nýst sem flestum, til notkunar og frekari þróunar.
Source: Skemman
Author: Þórunn Arnardóttir 1994-
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Artificial Intelligence
Field: Computer Science
Domain: Physical Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7001387590
