Work

Konur af erlendum uppruna: Kynbundið ofbeldi í nánum samböndum

Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Markmið ritgerðarinnar var að skoða hvað einkennir kynbundið ofbeldi gagnvart konum af erlendum uppruna. Markmiðið var einnig að kanna hvaða áskoranir konur af erlendum uppruna, sem búa við ofbeldi, þurfa mögulega að takast á við og hvernig það getur haft áhrif á möguleika þessa hóps til þess að yfirgefa samband. Þá var markmiðið að skoða nálganir félagsráðgjafa með konum almennt, sem og konum af erlendum uppruna, sem hafa orðið fyrir ofbeldi í nánu sambandi. \nHelstu niðustöður ritgerðarinnar voru þær að konur af erlendum uppruna sem búa við ofbeldi mæta sömu áskorunum og innlendar konur sem búa við ofbeldi. Til viðbótar geta konur af erlendum uppruna mætt ýmsum lagalegum, félagslegum og fjárhagslegum hindrunum, sem tengjast stöðu þeirra sem innflytjenda, og geta þessar hindranir haft áhrif á möguleika þessa hóps til þess að yfirgefa samband þar sem ofbeldi á sér stað.
Source: Skemman
Author: Helena Davidsen
Language: Icelandic
Subfield: Health
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7001493413
Cites: 22
Cited by:
Related to: 10