Work

Kynlíf og kynheilbrigði: Viðhorf félagsráðgjafa sem vinna með hjónum og pörum

Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Markmið þessarar rannsóknar var að kanna viðhorf félagsráðgjafa til umræðu um kynlíf og kynheilbrigði í vinnu sinni með hjónum og pörum. Kannað var hvort félagsráðgjafar sáu kosti við að ræða þau mál og hvort þeim þætti eitthvað koma í veg fyrir umræðuna. Kynlíf spilar stóran þátt í lífi flestra para og því er mikilvægt að ekki sé litið fram hjá þeim þætti þegar hjónum og pörum er veitt ráðgjöf. Kynlíf getur verið feimnismál og sumum reynist erfitt að ræða það. Þekking er einn þáttur sem gerir umræðuna auðveldari fyrir fagaðila og því ætti hún að vera partur af þekkingargrunni félagsráðgjafa. Markmiðið var því einnig að kanna hvort félagsráðgjöfum þætti þekking sín næg til þess að nálgast málefnið og hvort þeir teldu hana koma úr félagsráðgjafarnáminu. \t\t \nRannsóknin var framkvæmd eftir eigindlegum aðferðum og er byggð á viðtölum við sex starfandi félagsráðgjafa sem annað hvort í sínu aðalstarfi eða aukastarfi vinna með hjónum og pörum. Niðurstöður sýndu að viðhorf félagsráðgjafa til umræðu um kynlíf og kynheilbrigði í vinnu sinni með hjónum og pörum var almennt gott. Kostir umræðunnar voru þeir að hún gat leitt til jákvæðra breytinga í parsambandi. Niðurstöður gáfu ekki til kynna að eitthvað kæmi í veg fyrir umræðuna. Félagsráðgjafarnir töldu þekkingu sína vera næga en höfðu þó orð á því að hún mætti vera meiri. Í félagsráðgjafarnáminu fengu þeir litla sem enga kennslu um kynlíf og kynheilbrigði en þeir sögðu þekkingu sína ýmist komna úr öðru námi eða þeir höfðu sótt sér þá þekkingu sjálfir.
Source: Skemman
Author: Júlía Margrét Rúnarsdóttir 1988
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7001511335
Cites: 28
Cited by:
Related to: 10