Kynrænn sjálfsákvörðunarréttur : nýtur kynrænn sjálfsákvörðunarréttur trans fólks lagaverndar á Íslandi?
Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Markmið ritgerðarinnar er að svara þeirri spurningu hvort kynrænn sjálfsákvörðunarréttur sé tryggður á Íslandi. Til þess að svara þeirri spurningu var fyrst afmarkað hvað fælist í kynrænum sjálfsákvörðunarrétti og hvernig hann hefði verið tryggður samkvæmt þeim þjóðréttarlegu skuldbindingum sem Ísland hefði undirgengist. Þá var rakin þróun réttarins í íslenskum lögum og fjallað um hvernig hann væri tryggður í núgildandi lögum og framkvæmd. Helstu niðurstöður voru þær að í kynrænum sjálfsákvörðunarrétti fælist í hið minnsta réttur einstaklingsins til þess að leiðrétta kynskráningu sína og nafn til samræmis við kynvitund og að slík leiðrétting væri ekki viðlögð neinum meiðandi skilyrðum, sér í lagi um sjúkdómsvæðingu. Þá að slíkur réttur næði jafnt til kynsegin fólks. Loks fælist í réttinum að tryggður væri aðgangur að trans heilbrigðisþjónustu. Fram kom að allir þessir þættir hefðu að meginstefnu verið tryggðir í íslenskum lögum í dag. Þeir nytu þá ennfremur stjórnarskrárverndar samkvæmt 71. og 76. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Fram kom að þó væru enn nokkrir annmarkar sem stæðu í vegi þess að kynræns sjálfsákvörðunarréttar yrði notið til fulls. Lutu þeir meðal annars að takmörkunum á leiðréttingu kynskráningar, hefði hún þegar verið leiðrétt einu sinni. Þá takmörkunum á aðgang að heilbrigðisþjónustu, meðal annars langan biðtíma, takmörkunum á kostnaðarþátttöku sjúkratrygginga og að réttur til launa í veikindaforföllum í þeim tilfellum sem trans heilbrigðisþjónusta er sótt væri ekki tryggður. Eftir atvikum voru lagðar fram tillögur að úrbótum.
Source: Skemman
Author: Hekla Sigrúnardóttir
Institution: Reykjavík University
Language: Icelandic
Subfield: Social Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7001581894
