Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Ritgerð þessi leitaðist við að gefa innsýn í kortasvik, þróun þeirra síðustu áratugi og stöðu svikaumhverfisins í dag. Fjallað er um þær varnir sem til staðar eru og vöngum velt yfir staðsetningu ábyrgðar korthafa og banka. Að lokum var farið yfir mismunandi afleiðingar kortasvika á korthafa, seljendur og banka og þær aðgerðir sem þeir geta gripið til. Markmið ritgerðarinnar fyrir höfund var annars vegar að veita góða mynd af viðfangsefninu í heild sinni sem og að spegla þekkingu sína á íslensku svikaumhverfi í fræðunum. Unnið var með fyrirliggjandi gögn og heimildir úr rannsóknum sem framkvæmdar hafa verið víðs vegar um heiminn og er einnig byggt á reynslu höfundar. \nKortasvik eru að aukast samhliða aukningu í útgáfu korta og er tilkoma stafrænna lausna að hafa áhrif á þær aðferðir sem beitt er við kortasvik. Í dag eru það ekki einungis plastkortin sem óprúttnir aðilar geta komist yfir til að framkvæma svik heldur þarf korthafi að varast að kortaupplýsingar hans og rafræn skilríki lendi ekki í röngum höndum. \nÞróun kortasvika hefur náð nýjum hæðum í kjölfar heimsfaraldursins sem hófst árið 2020 þegar lífið eins og við þekktum það færðist að miklu leyti yfir á netið. Nýjar tegundir svika eru sífellt að verða til og duga svikavarnir viðskiptabanka ekki einar og sér til að koma í veg fyrir þær. Aukning hefur orðið í notkun aðferða sem herja á trúgirni og vanþekkingu korthafa sjálfra sem og misnotkun á auðkenndum greiðsluferlum af hálfu óprúttinna aðila sem gera varnarkerfum sífellt erfiðara fyrir að greina þau. Þátttaka og skilningur korthafa á tegundum og framkvæmd svika skiptir því meira máli nú en nokkurn tímann áður. Í því samhengi telur höfundur þörf á frekari umræðu hérlendis um skilgreiningu á ábyrgð og mögulega tilfærslu stýringar á notkunartakmörkunum korta yfir til korthafa sjálfra. Sé fjárhagsleg ábyrgð korthafa að verða meiri er mikilvægt að korthafi hafi fleiri tól í sínu vopnabúri til að koma í veg fyrir þau, enginn þekki færsluhegðun korthafa betur en korthafinn sjálfur. \nAuk korthafa geta viðskiptabankar og seljendur einnig tapað miklum fjármunum og átt í hættu á að verða fyrir orðsporstjóni vegna aðgerða eða aðgerðaleysis í ferli þar sem þeir hafa litla aðkomu. Þessir hagaðilar sitja oft uppi með beint tap af kortasvikum vegna glataðra viðskipta. Kortasvik, endurkröfuferli, endurgreiðslur réttmætra færslna og falskar hafnanir vegna svikavöktunarkerfis eru allt kostnaðarliðir sem vega þungt á hagsmunaaðilum og því mikilvægt að allir sem að ferlinu koma séu meðvitaðir um hvernig hægt sé að minnka áhrif þeirra á heildarumsvif.
Source: Skemman
Author: Ísabella Schweitz Ágústsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Law
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7001623473
