Work

Líkamsvirðing á Instagram: Birtingarmynd íslenskra kvenkyns áhrifavalda

Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Markmið þessarar rannsóknar er að komast að því hver birtingarmynd líkamsvirðingar hjá íslenskum áhrifavöldum á samfélagsmiðlinum Instagram væri. Kenning Charles Horton Cooley um spegilsjálfið og kenning Erving Goffmans um sjálfið spila lykilhlutverk í því að greina hegðunina á samfélagsmiðlum, ásamt öðrum fyrirliggjandi rannsóknum um líkamsvirðingu og samfélagsmiðla. Framkvæmd var netrannsókn á instagram á tíu íslenskum áhrifavöldum sem sýna fram á líkamsvirðingu og jákvæða sjálfsmynd. Þessir áhrifavaldar voru svo bornir saman við fimm erlenda áhrifavalda. Íslensku áhrifavaldarnir eru Erna Kristín, Fanney Dóra, Hulda B Waage, Ragga Nagli, Margrét Gnarr, Heiðrún Finnsdóttir, Guðrún Sørtveit, Camilla Rut, Heiðdís Austfjörð og Erna Hrund Hermannsdóttir. Þeir erlendu eru Lizzo, Tess Holliday, Ashley Graham, Sarah Nicole Landry og Megan Jayne Crabbe. Niðurstöðurnar benda til að áhrifavaldarnir eigi auðveldara með að miðla boðskapnum áfram til sinna fylgjenda og auka vitneskjuna um líkamsvirðinguna. Í litlum bransa eins og sá sem áhrifavaldarnir starfa í skiptir samstaða og hvatning miklu máli og íslensku konurnar eru sérstaklega duglegar við að hvetja hvor aðra áfram í baráttunni.
Source: Skemman
Author: Ragnheiður Sigurbjörg Árnadóttir
Language: Icelandic
Subfield: Gender Studies
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7001747511
Cites: 15
Cited by:
Related to: 10