Lestrarhegðun og augnhreyfingar milli tungumála. L1 og L2 lestrarhegðun: íslensk og ensk augnhreyfingarannsókn.
Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Lestur á annarri tungu en móðurmáli hefur ekki verið rannsakaður nógu rækilega. Rannsóknir hafa áður greint bæði líkindi og mun á lestrarhegðun einstaklings á eigin móðurmáli (L1) og öðru tungumáli (L2), sem leitt hefur til þeirra niðurstaðna að árangursrík lestrarhegðun lesenda á L2 endurspeglast af L1 lestrarvenjum þeirra. Þrátt fyrir þetta hafa engar rannsóknir verið gerðar á íslensku L1 sem tengist lestri og augnhreyfingum hingað til. Til að uppfylla þetta tómarúm kynnir þessi rannsókn MECO L2 (Multilingual Eye Movements Corpus), yfirgripsmikið gagnasafn fyrir augnhreyfingar sem inniheldur gögn um textalestur meðal 57 þátttakenda með íslensku sem L1 og ensku sem L2. MECO felur í sér mælingar á augnhreyfingum og önnur próf á mismunandi þáttum lestrarfærni sem gerir rannsakendum kleift að bera saman frammistöðu þátttakenda á meðan þeir lesa annað hvort texta í L1 eða L2. Niðurstöður bentu til þess að þátttakendur sýna sambærilega hæfni þegar verkefni beggja tungumála eru leyst – eins og búist var við.
Source: Skemman
Authors: Alice Sigurgrímsdóttir, Arnar Logi Oddsson, Judita Polepsaityte
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7001774912
