Leið til læsis : stuðningskerfi í lestrarkennslu
Year: 2010
Type: article
Abstract: Komið hefur í ljós að vönduð og fagleg lestrarkennsla á fyrstu þremur til fjórum árum grunnskólagöngunnar er úrslitaatriði fyrir velgengni barna í lestrarnámi, ekki síst þeirra barna sem eiga erfitt með að ná tökum á lestri (Hulme og Snowling, 2009; Torgesen, 2001, 2005). Á undanförum tveimur áratugum hafa rannsóknir leitt í ljós að hægt er að fyrirbyggja eða draga úr alvarleika lestrarvanda hjá ungum börnum með viðeigandi, faglegri kennslu. Erfiðleikar barna við upphaf lestrarnáms einkennast af veikleikum í hljóðkerfi tungumálsins. Þá er orðaforði leikskólabarna sterkur forspárþáttur um gengi í lesskilningi síðar meir. Greinin varpar ljósi á mikilvægi þess að bregðast eins fljótt og auðið er við lestrarvanda ungra barna með viðeigandi íhlutun og kennslu.
Source: Skemman
Authors: Steinunn Torfadóttir 1952, Helga Sigurmundsdóttir 1955, Bjartey Sigurðardóttir 1957, Ásthildur Bj. Snorradóttir 1952
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7001840047
