Work

Líðan og stuðningsþarfir kvenna sem hætta brjóstagjöf á fyrstu þremur mánuðum eftir fæðingu: Eigindleg rannsókn

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Bakgrunnur: Konur sem hætta brjóstagjöf á fyrstu mánuðum eftir fæðingu upplifa oft að slík ákvörðun sé þungbær. Meiri hluti kvenna upplifir sorg, kvíða og óöryggi og jafnvel geta tilfinningar eins og að hafa mistekist í móðurhlurverkinu gert vart við sig. Mikilvægt er að konur finni fyrir stuðningi og að þær séu valdefldar í að taka eigin ákvörðun um brjóstagjöf. Í þessu sambandi er mikilvægt að byggja á raunverulegri reynslu kvenna. Markmið: Að öðlast skilning á líðan og stuðningsþörfum kvenna sem hafa hætt brjóstagjöf innan þriggja mánaða frá fæðingu. Með því er vonast til að hægt sé að greina þjónustuþörf og finna leiðir sem stuðla að bættri upplifun og þjónustu. Aðferð: Eigindleg rannsókn þar sem með tilgangsúrtaki voru valdir 8 viðmælendur sem höfðu reynslu af því að hætta með börnin sín á brjósti innan þriggja mánaða frá fæðingu. Gagna var aflað með hálfstöðluðum viðtölum á tímabilinu október 2023 til janúar 2024. Viðtalsgögnin voru greind með eigindlegri efnisgreiningu þar sem stuðst var við aðleiðslu. \nNiðurstöður: Líðan og stuðningsþarfir kvennana endurspeglast í eftirtöldum þemum: 1) ,,Væntingar til brjóstagjafar á skjön við raunveruleikann ”sem skiptist í a) Hafsjór tilfinninga, b) væntingar sem ekki standast, og c) viðhorf samfélagsins. 2) ,,Að vera gripinn og finna öryggi í nýjum aðstæðum ” og voru þrjú undirþemu greind: a) Stuðningur og fræðsla, b) Fagaðili með þekkingu, og c) Valdefling í eigin ákvörðun. \nÁlyktun: Nauðsynlegt er að grípa og styðja við konur sem hætta brjóstagjöf á fyrstu þremur mánuðum eftir fæðingu. Það má gera með að auka stuðning, fræðslu og valdeflingu innan heilbrigðisþjónustunnar þar sem hjúkrunarfræðingar og ljósmæður eru í lykilstöðu. Þannig má auka skilning og samkennd í garð kvenna sem ganga í gegnum þessa reynslu og stuðla að orðræðu sem mildar viðhorf samfélagsins. Konur þurfa einstaklingsmiðaða og heildræna nálgun þar sem tilfinningar þeirra eru í brennidepli. \n \nLykilorð: Brjóstagjöf, reynsla, stuðningsþarfir, þemagreining, eigindleg.
Source: Skemman
Author: Kristín Greta Bjarnadóttir
Language: Icelandic
Subfield: Health
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7001891074
Cites: 39
Cited by:
Related to: 10