„Maður reiknaði aldrei með því að þetta yrði bara dans á rósum“: Lykill fólks að langlífu og farsælu hjónabandi, einkenni þeirra og gildi
Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Tilgangur þessarar rannsóknar var að auka þekkingu á langlífum og farsælum hjónaböndum. Í fyrsta lagi var kannað hvað fólk teldi lykilinn að langlífu og farsælu hjónabandi, í öðru lagi hvað fólk teldi einkenna þessi hjónabönd og í þriðja lagi hvort gildin væru breytileg eftir aldursbilum. Rannsóknin var unnin á þann hátt að tekin voru 6 rýnihópaviðtöl við samtals 31 einstakling á þremur mismunandi aldursbilum, 30-36 ára, 50-60 ára og fólk komið yfir sjötugt. Niðurstöðurnar gefa til kynna að lykillinn að langlífu og farsælu hjónabandi sé a) raunhæfar væntingar til maka og hjónabandsins, b) mikil þrautseigja og c) að djúpstæð vinátta og nánd sé sá grunnur sem nauðsynlegt sé að sambandið byggji á. Þá kom fram að gildin eru þau sömu þegar horft er til mismunandi aldursbila en svo virðist sem yngra fólk leggi minni áherslu á þessi gildi. Niðurstöðurnar gefa vísbendingar um hvaða þættir geti verið mikilvægir til að spá fyrir um langlíf og farsæl hjónabönd. Rannsókn þessi skapar því þekkingu sem hægt er að nýta til að styðja pör/hjón sem leita sér aðstoðar og vilja styrkja samband sitt
Source: Skemman
Author: Ásta Arnbjörg Pétursdóttir 1974
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Social Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7001895633
