Málþroski fyrirbura: Rannsókn á niðurstöðum málþroskaathugana fyrirbura á Barnaspítala Hringsins árin 2012–2021
Year: 2024
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Ýmiss konar áhætta fylgir því að fæðast fyrir tímann og fyrirburar eru viðkvæmur hópur sem mikilvægt er að fylgja eftir. Fyrirburar eru meðal annars líklegri til að glíma við heilalömun (CP), sjón- og heyrnarskerðingar, taugaþroskaraskanir og ýmiss konar vitræna, félagslega og námstengda erfiðleika. Erlendar rannsóknir benda til þess að fyrirburar séu með seinkaðan málþroska í samanburði við fullburða jafnaldra. \nMarkmið þessa verkefnis var að kanna málþroska íslenskra fyrirbura sem fæddust fyrir 28. viku meðgöngu og/eða höfðu fæðingarþyngd undir 1000 grömmum á árunum 2012–2021. Slík rannsókn hefur aldrei verið framkvæmd hérlendis með þessum hætti. Farið var yfir niðurstöður málþroskaathugana 43 barna sem eru til í sjúkraskrá þeirra. Þær niðurstöður voru bornar saman við viðmið um hefðbundinn málþroska jafnaldra. Einnig var athugað hvort munur væri á máltjáningu og málskilningi fyrirbura, hvort tengsl væru milli alvarleika heilablæðingar og alvarleika málþroskavanda og að lokum hvort kynjamunur væri á frammistöðu í málþroskaathugunum. \nNotast var við niðurstöður úr málþroskaprófinu Málfærni ungra barna (MUB), þar sem meðaltal er 100 og staðalfrávik 15. Í þessu úrtaki voru 70% þátttakenda innan marka samkvæmt viðmiðum MUB. Frammistaða 11% þátttakenda var afburðargóð. Að lokum voru 19% þátttakenda undir mörkum og töldust því með slakan málþroska. Enginn marktækur munur fannst á frammistöðu þátttakenda á málskilnings- og máltjáningarhluta prófsins. Engin fylgni fannst á milli alvarleika heilablæðingar og lækkaðrar málþroskatölu. Að lokum fannst enginn marktækur munur á frammistöðu stúlkna og drengja. \nÞessar niðurstöður eru ekki í samræmi við erlendar rannsóknir á málþroska fyrirbura þar sem ítrekað kemur fram að fyrirburar séu með seinkaðan málþroska í samanburði við jafnaldra. Þó ber að hafa í huga að þetta úrtak er hugsanlega ekki nægilega lýsandi fyrir þennan hóp fyrirbura þar sem börnin með alvarlegustu fylgikvilla fyrirburafæðinga gátu ýmist ekki tekið þátt í fyrirlögn eða var vísað á aðra stofnun. Að auki gætu prófanir hafa átt sér stað of snemma og því er sett fram sú tillaga að seinka málþroskaprófunum á íslenskum fyrirburum frá 2 ára leiðréttum aldri til 3 ára aldurs.
Source: Skemman
Author: Gunnhildur Gunnarsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7001981322
