Work

Með lífsánægju í lúkunum? Samspil lífsánægju, samfélagsmiðla og félagslegs umhverfis unglinga

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Á undanförnum árum hefur geðheilsa unglinga farið versnandi, lífsánægja þeirra minnkað og andleg vanlíðan mælist meiri en nokkru sinni fyrr, sérstaklega meðal stelpna. Þegar því er velt upp hvað orsakar þessari þróun er samfélagsmiðlanotkun gjarnan nefnd. Niðurstöður rannsókna á tengslum samfélagsmiðlanotkunar og velferð unglinga hafa verið mismunandi og jafnvel misvísandi. Þær gefa vísbendingu um að margir mismunandi þættir hafi áhrif á vellíðan unglinga. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hvernig samfélagsmiðlanotkun hefur áhrif á lífsánægju meðal unglinga í 8. og 10. bekk í grunnskólum á Íslandi. Þá verður athugað hvernig kyn getur haft áhrif á samfélagsmiðlanotkun og lífsánægju unglinga. Auk þess verður viðfangsefnið skoðað út frá félagslegu samhengi og kannað hvort aðrir þættir í félagslegu umhverfi unglinga hafi einnig áhrif. Með félagslegu umhverfi er átt við fjölskyldu, vini, skóla, íþróttir og tómstundir. Notast er við fyrirliggjandi gögn úr rannsókninni Heilsa og lífskjör skólanema (HBSC) sem er hluti af Íslensku æskulýðsrannsókninni. Niðurstöður sýna að samfélagsmiðlanotkun hafi almennt jákvæð áhrif á lífsánægju unglinga. Þó er mikilvægt að taka til greina mismunandi tegundir samfélagsmiðlanotkunar þar sem áhrifin á lífsánægju eru ólík eftir tegundum. Í ljós komu samvirkniáhrif fyrir kyn þar sem samfélagsmiðlanotkun hefur mismunandi áhrif á lífsánægju eftir kyni. Þá upplifa stelpur minni lífsánægju því meira sem þær nota samfélagsmiðla samanborið við stráka og stálp. Stálpin upplifa vissulega minni lífsánægju yfirhöfuð miðað við bæði stelpur og stráka en lífsánægja þeirra eykst því meira sem þau nota samfélagsmiðla samanborið við stelpurnar. Félagslegt umhverfi hefur talsvert meiri áhrif á lífsánægju unglinga en samfélagsmiðlanotkun og má þá sérstaklega nefna fjölskyldu og skóla. Niðurstöðurnar sýna fram á hve mikilvægt og veigastórt hlutverk félagslegt umhverfi spilar í lífi og velferð barna og unglinga og að skoða þurfi samfélagsmiðlanotkun þeirra út frá heildarsýn. \nEfnisorð: Lífsánægja, samfélagsmiðlar, unglingar, félagslegt umhverfi, geðheilsa, velferð
Source: Skemman
Author: Erna Lea Bergsteinsdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7002039483
Cites: 93
Cited by:
Related to: 10