Work

Má ég trufla? : tengsl athyglis í daglegu lífi við hugræn verkefni sem mæla athyglisgáfur

Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Ritgerð þessi beinir sjónum að athygli í hversdagslegu lífi. Ritgerðin fjallar um fræðilegan bakgrunn hugrænna verkefna sem mæla athyglisgáfur og megindlega rannsókn um athygli í hversdagslegu lífi. Farið er út í sögu athyglisrannsókna og fjallað um helstu kenningar um athygli. Í rannsókninni er lagt fyrir nokkur af algengustu tilraunaverkefnum sem ætluð eru til að mæla athygli ásamt sjálfsmats spurningalista um athygli í hversdagslegu lífi. Verkefnin eru sjónleitarverkefni, GNG verkefni (e. go/no-go task) og ANT verkefni (e. Attention Network \nTest) og er þeim lýst í ritgerðinni. Einnig er sagt frá ELAS sjálfsmats spurningalistanum \n (e. Everyday Life Attention Scale) sem spyr um aðstæðubundna athygli og var hann þýddur úr ensku yfir á íslensku. Markmiðið með þessari ritgerð er að rannsaka tengsl þessa verkefnis við sjálfsmat þátttakenda á athygli í daglegu lífi: hversu auðveldlega truflast þeir, hve auðveldlega geta þeir viðhaldið athygli á tilteknu verkefni og svo framvegis. Fylgnimælingar voru gerðar til að skoða tengslin á milli verkefnanna og spurningalistans. Einnig var skoðað tengsl verkefnanna við undirkvarða spurningalistans og niðurstöður settar í samhengi. Þátttakendur voru upphaflega 115 talsins en eftir gagnahreinsun stóðu eftir 93 þátttakendur. Tilgátur rannsóknarinnar eru fjórar. Í GNG verkefninu spáum við því að með aukinni skilvirkni (svartími réttra svara í “go” umferðum deilt með hlutfalli réttra svara í “no go" umferðum), þá lækkar þátttakandi á heildarskori sjálfsmatslistans. Í ANT verkefninu spáum við því að með lengri svartímum þegar hliðaráreiti eru í samræmi og misræmi við markáreitið, þá lækkar þátttakandi á heildarskori sjálfsmatslistans. Einnig spáum við því í ANT verkefninu að eftir því sem svartímar lengjast þegar að vísbendi dregur okkur að markáreitinu og þegar vísbendið dregur okkur frá markáreitinu, þá lækkar þátttakandi á heildarskori spurningalistans. Í sjónleitarverkefninu spáum við því að með hækkandi hallatölu þátttakanda (aukinn svartími þegar áreiti er bætt við), þá lækkar þátttakandi á heildarskori sjálfsmatslistans. Þar að auki voru skoðuð möguleg tengsl athyglisverkefnanna við undirkvarða spurningalistans. Niðurstöður benda til þess að athyglisverkefnin spái misvel til um hvernig fólk metur athygli sína í hversdagslegu lífi. Ekki er vitað um aðrar rannsóknir sem rannsaka tengsl athyglisverkefna og sjálfsmats á athygli í hversdagslegu lífi og er því þörf á frekari rannsóknum. \n Lykilorð: athygli, athyglisverkefni, sjálfsmats spurningalisti, truflun, skynjun, áreiti.
Source: Skemman
Authors: Oddur Kárason, Margrét Lena Kjartansdóttir, Patrekur Örn Gestsson
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7002066316
Cites: 30
Cited by:
Related to: 10