„Maður vill ekki vinna fyrir hvern sem er“ Áhrif vörumerkja á aðdráttarafl vinnuveitandans og starfsumsóknaráform meðal Z-kynslóðar í atvinnuleit
Year: 2025
Type: dissertation
Abstract: Atvinnulífið stendur frammi fyrir merkilegum tímamótum með aukinni innkomu Z-kynslóðar á vinnumarkaðinn. Þessi kynslóð, sem hefur verið mótuð af einstökum samfélagsaðstæðum og áður óþekktum tækniframförum, hefur þróað einstök viðhorf til vörumerkja sem greinir hana frá fyrri kynslóðum. Þar sem elstu meðlimir þessarar kynslóðar eru nú að hefja sín fyrstu störf eftir háskólanám, er þekking á viðhorfum hennar til vörumerkja vinnuveitenda enn takmörkuð, sérstaklega hvað varðar áhrif vörumerkja vinnuveitenda á hegðun í atvinnuleit. Vörumerki og mannauður eru meðal verðmætustu auðlinda fyrirtækja, og því er mikilvægt að fyrirtæki tileinki sér skilning á kröfum og væntingum hverrar kynslóðar fyrir sig. Með slíkan skilning geta fyrirtæki betur aðlagað markaðs- og mannauðsstefnur sínar, aukið aðdráttarafl sitt sem vinnuveitendur og styrkt samkeppnisstöðu sína á vinnumarkaði. Markmið þessarar rannsóknar er að greina hvernig viðhorf Z-kynslóðarinnar til vörumerkja hefur áhrif á hegðun þeirra í atvinnuleit og hvaða þættir vörumerkja móta starfsumsóknaráform þessara umsækjenda. Rannsóknin byggir á tíu viðtölum við atvinnuleitendur úr þessari kynslóð. Helstu niðurstöður sýna að skynjun einstaklinga á vörumerkjum hefur veruleg áhrif á aðdráttarafl þess sem vinnuveitandi, sem seinna mótar starfsumsóknaráform umsækjenda. Niðurstöður varpa ljósi á mikilvægi þátta eins og vörumerkjavirðis, orðspors fyrirtækja, reynslu annarra af fyrirtækinu og markaðsaðgerða fyrirtækja. Þessir þættir geta ýmist haft jákvæð eða neikvæð áhrif á starfsumsóknaráform Z-kynslóðar. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi þess að fyrirtæki skipuleggi markaðsaðgerðir sínar vandlega og miði að því að ná til markhópa á þeim miðlum sem þeir nota mest. Með þessu geta fyrirtæki ekki aðeins aukið aðdráttarafl sitt sem vinnuveitandi heldur einnig byggt upp traust meðal hugsanlegra starfsmanna.
Source: Skemman
Author: Kamila Antonina Tarnowska
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Gender Studies
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Keywords: Generation Z, generational differences, brand awareness, brand loyalty, job seekers, job applications, employer branding, human resource management, employee recognition, employee benefits, employee training, employee career development, work-life balance, employee well-being, workplace diversity, employee inclusion
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7002073247
