Work

Mikilvægi fjármálalæsis hjá ungu fólki á Íslandi. Hverjar eru afleiðingar þess að vera illa læs á fjármál?

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Í þessari ritgerð verður gert grein fyrir mikilvægi fjármálalæsis hjá ungu fólki á Íslandi og hvaða afleiðingar það getur leitt af sér að vera illa læs á fjármál. Fyrri rannsóknir hér á landi hafa sýnt fram á slakt fjármálalæsi meðal almennings og deilt hefur verið um hvort að kennsla á viðfangsefninu sé að skila sér til ungmenna. Stjórnvöld hafa unnið að því að efla fjármálalæsi en óljóst er hvort að þær aðgerðir hafi borið árangur þar sem staða ungmenna hefur ekki verið könnuð síðan. Aðstæður eins og kreppa, COVID-19 og aukin verðbólga komu mörgum í erfiða stöðu fjárhagslega. Þessar breyttu aðstæður ásamt stöðugri tækniþróun gætu leitt í ljós nýjar niðurstöður og því væri áhugavert að kanna stöðu fjármálalæsis hjá ungu fólki á ný. Við vinnslu þessa verkefnis var notast við fyrirliggjandi gögn og rýnt í eldri rannsóknir á viðfangsefninu.
Source: Skemman
Author: Hjördís Rósa Guðmundsdóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7002126603
Cites: 20
Cited by:
Related to: 10