Work

Meðferðir við vímuefnavanda : gætu hugvíkkandi efni verið ákjósanlegur valkostur í meðferðum?

Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Vímuefnavandi er vaxandi lýðheilsuvandamál í heiminum í dag og hefur víðtæk samfélagsleg áhrif. Vandinn er flókinn og orsakir margþættar. Endurtekin vímuefnanotkun veldur truflunum á boðefnakerfum heilans sem getur haft áhrif á sjálfsstjórn, athygli, minni, sjálfsvitund og tilfinningar. Algengt er að einstaklingar með vímuefnavanda glími einnig við þunglyndis- og kvíðaeinkenni en áfallasaga er líka algeng. Félagslegir þættir geta bæði haft jákvæð og neikvæð áhrif á þróun vímuefnavanda. Meðferðir við vímuefnavanda á Íslandi styðjast við AA-12-spora kerfið, HAM, áhugahvetjandi samtal, núvitund og lyf. Meðferðir við vímuefnavanda virðast skila takmörkuðum árangri. \nHugvíkkandi efni hafa verið notuð í þúsundir ára. Undanfarið hefur áhugi á rannsóknum með hugvíkkandi efnum við vímuefnavanda verið endurvakinn. Efnin virkja 5HT2A viðtakana, hafa áhrif á boðefnakerfi heilans og stuðla að nýmyndun og endurskipulagningu taugafrumna. Áhrif hugvíkkandi efni valda meiri tilviljanakenndri óreiðu í heilanum sem hefur áhrif á skynjun, geðslag og hugræna ferla, sem getur leitt til nýrra hugsanaferla. Hugvíkkandi efni geta haft ólík áhrif á sjálfið, geta aukið innsýn í hugsanaferla, vandamál og fyrri reynslu. Margir greina frá þýðingarmiklum og yfirnáttúrulegum upplifunum, sem geta breytt viðhorfum og gildum til lengri tíma. Rannsóknir sýna að psilocybin og Ayahuasca geti dregið úr fíkn og notkun örvandi efna, nikótíns og áfengis. Ibogaine hefur sýnt árangur í fráhvarfsmeðferð við ópíóðum og dregið úr fíkn og notkun ýmissa vímuefna. Ketamín hefur sýnt árangur við ýmiss konar vímuefnavanda og meðferðareiginleikar MDMA virðast lofa góðu. Talið er að efnin, hugarfar skjólstæðings, ytri aðstæður og meðferðaraðilinn hafi samverkandi áhrif á árangur meðferðar. Meðferðin virðist geta leitt til þess að tekið sé á vandanum á heildrænan hátt, haft jákvæð áhrif á kvíða, þunglyndi, stuðlað að úrvinnslu einstaklingsbundinna vandamála og bætt lífsgæði. Rannsóknir á hugvíkkandi efnum í meðferðum við vímuefnavanda lofa góðu. Þær virðast bera meiri árangur en meðferðir sem notaðar eru í dag en hafa þó fengið takmarkaða viðurkenningu.
Source: Skemman
Authors: Helga Sif Víðisdóttir, Gyða Björg Þórsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Epidemiology
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7002145762
Cites: 177
Cited by:
Related to: 10