Notkun hjartarafsjáa við vöktun sjúklinga : vettvangsrannsókn á hjartadeild
Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Bakgrunnur. Hjartarafsjá er notuð í vaxandi mæli við eftirlit og greiningu á ástandi sjúklinga og gegna hjúkrunarfræðingar lykilhlutverki í að túlka og nýta upplýsingar frá henni. Notkun hjartarafsjáa er víða í heilbrigðiskerfinu orðinn mikilvægur þáttur í góðri afkomu sjúklinga en ómarkviss notkun hennar og mikill fjöldi óþarfa viðvörunarbjallna getur ógnað öryggi sjúklinga. \nTilgangur og markmið. Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða hvernig hjúkrunarfræðingar vinna með hjartarafsjá við vöktun sjúklinga og þau áhrif sem hjartarafsjá hefur á störf hjúkrunarfræðinga með það að markmiði að stuðla að markvissri notkun hennar og efla öryggi sjúklinga. \nAðferð. Eigindleg vettvangsrannsókn þar sem tekin voru hálfstöðluð einstaklingsviðtöl og gerð vettvangsathugun á 35 rúma hjartadeild. Gagnasöfnun fór fram frá nóvember 2016 fram í maí 2017. Notast var við tilgangsúrtak og voru gögnin greind með kerfisbundinni þéttingu texta (e. systematic text condensation) samkvæmt aðferð Malterud. \nNiðurstöður. Alls tóku átta hjúkrunarfræðingar þátt í rannsókninni, allt konur á aldrinum 27 til 49 ára. Fram komu fimm þemu. Sérhæfð færni lýsir þekkingu hjúkrunarfræðinga og faglegri færni í vinnu með hjartarafsjá. Þemað Hjálpartæki fjallar um hvernig hjúkrunarfræðingarnir nýttu hjartarafsjá, viðhorfi þeirra til hjartarafsjárnotkunar og mikilvægis hennar við eftirlit sjúklinga. Í Samvinnuverkefni er því lýst hvernig hjúkrunarfræðingar unnu saman og treystu hver á annan við eftirlit með gögnum frá hjartarafsjám. Falskt öryggi fjallar um ófullnægjandi hjartarafsjáreftirlit vegna starfsaðstæðna, vinnutilhögunar og dreifðar ábyrgðar hjúkrunarfræðinga deildarinnar. Að lokum lýsir Streituvaldandi álagi vegna óþarfa truflana og áreitis tengdu hjartarafsjárnotkun, bæði fyrir sjúklinga og hjúkrunarfræðinga. \nUmræða og ályktanir. Hjúkrunarfræðingarnir töldu hjartarafsjáreftirlit mikilvægt til að geta fylgst með ástandi bráðveikra hjartasjúklinga og brugðist við lífsógnandi breytingum. Þeir notuðu hjartarafsjá á fjölbreyttan hátt og treystu hver á annan við það eftirlit. Þó var hjartarafsjáreftirlitið að hluta til ófullnægjandi og núverandi skipulag og starfsaðstæður drógu úr áreiðanleika þess. Eftirlitið var tímafrekt og krafðist mikillar einbeitingar hjúkrunarfræðinga og urðu óþarfa truflanir til þess að athyglinni var beint frá öðrum mikilvægum þáttum eins og beinni umönnun sjúklinga, lyfjatiltekt og skráningu hjúkrunarupplýsinga. Því er brýnt að endurskoða skipulag hjartarafsjáreftirlits til að tryggja öryggi sjúklinga. \nLykilorð. Vettvangsrannsókn, hjartarafsjá, eftirlit, viðvörunarbjöllur og hjúkrun hjartasjúklinga.
Source: Skemman
Author: Gerður Rán Freysdóttir 1972
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Surgery
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7002339248
