Work

Námsáhugi unglinga. Tengsl andlegrar líðanar, skjánotkunar og svefns við námsáhuga nemenda á unglingastigi grunnskóla

Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort og þá hvernig andleg líðan, skjánotkun og svefn hefur áhrif á námsáhuga nemenda á unglingastigi í grunnskóla. Notast var við fyrirliggjandi gögn úr könnuninni Ungt fólk 2016 sem lögð var fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk í febrúar 2016. Unnið var með slembiúrtak úr heildarsvörum sem samanstóð af 2014 nemendum og af þeim voru 980 strákar og 1041 stelpa. Niðurstöður voru fengnar með því að reikna fylgni milli breyta, krosstöflum og fjölbreytuaðhvarfsgreiningu. Niðurstöður sýndu að samanlögð áhrif andlegrar vanlíðunar, skjánotkunar og svefns hafa töluverð áhrif á námsáhuga nemenda. Því meiri vanlíðan, meiri skjánotkun og minni svefn því minni námsáhuga sýna nemendur. Andleg vanlíðan hafði þar mestu neikvæðu áhrifin. Þá voru tengslin mun sterkari hjá stelpum en strákum. Námsáhugi er þó alla jafna mjög góður hjá nemendunum en fer dvínandi eftir því sem nemendur eldast. Nýta má niðurstöður í ráðgjöf með unglingum sem sýna áhugaleysi í námi. Einnig til að auka fræðslu til kennara og foreldra svo hægt sé að efla áhuga nemenda til frekara náms.
Source: Skemman
Author: Kolbrún Vilhjálmsdóttir 1976
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7002398826
Cites: 80
Cited by:
Related to: 10