Work

Notkun fæðubótarefna og vefverslun

Year: 2017
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Rannsókn þessi var gerð með það markmið að svara fjórum rannsóknarspurningum. Fyrir það fyrsta vildu rannsakendur kanna hvort að þeir einstaklingar sem stunda hreyfingu fjórum sinnum eða oftar í viku verji hærri fjárhæð í kaup á fæðubótarefnum á mánuði en þeir sem æfa sjaldnar. Þar næst vildu rannsakendur kanna hvort að karlmenn sem ekki hafa háskólamenntun verji hærri fjárhæð í kaup á fæðubótarefnum á mánaðargrundvelli en háskólamenntaðir karlmenn. Þriðja rannsóknarspurningin var að kanna hvort konur höfðu¬ frekar keypt fæðubótarefni í íslenskum vefverslunum en karlar og síðasta rannsóknarspurningin sneri að því hvort konur telji að rafrænt umtal um vöru eða þjónustu hafi meiri áhrif á kaup þeirra en karlar telji það hafa á sig. \nSpurningalisti var útbúinn af rannsakendum og deilt í gegnum samskiptavefinn Fésbók. Í spurningalistanum voru þátttakendur meðal annars spurðir hvort þeir hefðu keypt vöru eða þjónustu í vefverslun, hvort þeir hefðu keypt fæðubótarefni almennt og hvort þeir hefðu keypt fæðubótarefni í vefverslun. \n \tNiðurstöður leiddu í ljós að marktækur munur var á meðaltali fjárhæðar sem varið var í fæðubótarefni á mánaðargrundvelli milli þeirra sem stunduðu hreyfingu fjórum sinnum eða oftar í viku og þeirra sem stunduðu hreyfingu sjaldnar. Einnig kom í ljós að karlar sem höfðu ekki lokið háskólanámi vörðu að meðaltali hærri fjárhæð í kaup á fæðubótarefnum en háskólamenntaðir karlar en þó var munurinn ekki marktækur. Þar að auki kom fram að konur versluðu frekar á íslenskum vefverslunum en karlar. Konur töldu að rafrænt umtal hefði meiri áhrif á kaup sín en karlar töldu það hafa á sig og var sá munur marktækur.
Source: Skemman
Authors: Halldóra Björg Helgudóttir 1992, Þórhildur Þórarinsdóttir 1994
Language: Icelandic
Field: Nursing
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7002448024
Cites: 35
Cited by:
Related to: 10