Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Bakgrunnur: Regluleg ástundun hreyfingar stuðlar að góðri heilsu á öllum æviskeiðum, bætir lífsgæði, og gegnir mikilvægu hlutverki í meðhöndlun fjölda sjúkdóma. Hreyfingarleysi er algengt meðal fólks í hinum vestræna heimi og mikil áskorun að finna árangursríkar leiðir sem geta stuðlað að aukinni hreyfingu. \nMarkmið: Að gera fræðilega samantekt á niðurstöðum rannsókna sem höfðu það að markmiði að kanna hvort auka mætti ástundun hreyfingar hjá heilbrigðu fullorðnu fólki með hjálp snjallúra og leggja mat á það hvernig snjallúr geta haft áhrif á iðkun hreyfingar. \nAðferðir: Framkvæmd var kerfisbundin vefleit með leitarorðum að nýlegum rannsóknargreinum, þar sem snjallúr voru notuð í íhlutunum, sem miðuðu að því að auka hreyfingu. Valdar greinar fjölluðu um slembnar íhlutunarrannsóknir á heilbrigðum einstaklingum eldri en 18 ára og náðu yfir minnst 12 vikna tímabil. \nNiðurstöður: Í öllum nema einni rannsókn reyndist einn eða fleiri af íhlutunarhópunum sem notuðu snjallúr hafa aukið hreyfingu í lok íhlutunar. Bestum árangri skiluðu íhlutanir sem unnu einnig með aðrar aðferðir sem geta mótað hegðun eins og fræðslu, sérstaka markmiðasetningu og áætlunargerð, sýndarþjálfun, keppni milli þátttakenda eða fjárhagslegan ávinning af góðum árangri. Verulega dró úr magni hreyfingu eftir að íhlutunum lauk í þeim rannsóknum sem veittu þátttakendum eftirfylgd. \nUmræður/ályktun: Niðurstöður benda til þess að eiginleikar snjallúra, eins og að sýna magn hreyfingar og endurgjöf á árangur, geti stuðlað að reglulegri hreyfingu hjá fullorðnum notendum í hinu almenna þýði, einkum sem viðbót við aðrar aðferðir. Snjallúr eru þó engin töfralausn og nýtast fyrst og fremst fólki sem er áhugasamt um aukna hreyfingu og tilbúið til að nýta snjallúr í þeim tilgangi. Nauðsynlegt er að leggja betur mat á hvaða hópi fólks úrin henta og hvaða áskoranir geta fylgt notkuninni, svo sem eins og fjármögnun og þjálfun þeirra sem stýra slíkri meðferð, áður en hægt er að mæla með snjallúranotkun í íhlutunum á sviði lýðheilsu.
Source: Skemman
Author: Gunnhildur Sveinsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Physical Activity and Health
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7002479402
