Work

ORAT hjá Isavia

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Í þessu starfstengda verkefni var ORAT aðferðafræðin hjá Isavia viðfangsefnið. Rannsóknin miðaði að því að sjá samsvörun ORAT við valin fræði og tók til innleiðingar á ORAT hjá Isavia, ávinnings af aðferðafræðinni og möguleg tækifæri til umbóta. Eigindleg rannsóknaraðferð varð fyrir valinu til að gefa rannsakanda dýpri innsýn og skilning á upplifun og reynslu notenda aðferðafræðinnar innan veggja Isavia. Gagnaöflunin var í formi viðtala og vinnustofu. Tekin voru sjö viðtöl við handvalda einstaklinga innan Isavia sem allir hafi komið að ORAT verkefnum og haldin var ein vinnustofa með endanotendum sem komu að ORAT ferlinu í akbrautarverkefninu Mike. \nHelstu niðurstöður sýndu fram á að innleiðingin á ORAT er enn í gangi hjá Isavia en þrátt fyrir það hefur skapast sjáanlegur ávinningur af ORAT. Ávinningurinn er þvert á skipulagsheildina að því er virðist og óháður snertifleti hvers og eins við aðferðafræðina. Þó svo að almenn ánægja sé með ORAT þá sáu viðmælendur tækifæri til umbóta og þeim voru gerð góð skil í rannsókninni. Möguleg tækifæri sem fram komu í rannsókninni falla þó ekki öll undir ORAT en eiga það öll sameiginlegt að snúa að stærri framkvæmdaverkefnunum á Keflavíkurflugvelli.
Source: Skemman
Author: Böðvar Schram
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7004578904
Cites: 11
Cited by:
Related to: 10