Work

Orðaforði tvítyngdra barna : markviss orðaforðakennsla í útinámi

Year: 2020
Type: dissertation
Study design: Clinical Trial
Abstract: Þessi meistaraprófsritgerð er unnin sem starfendarannsókn. Ritgerðin fjallar um orðaforða tvítyngdra barna með áherslu á útikennslu. Fimm 4–5 ára börn sem læra íslensku sem annað mál fengu markvissa orðaforðakennslu utandyra í sjö vikur. Markmið rannsóknarinnar var að auka orðaforða barnanna með áherslu á orðaforða sem tengist útiveru og umhverfi okkar utanhúss. Til þess að ná þessu markmiði voru notuð þrjú orðaþemu úr námsefninu Orðaleikur – orðanám í leikskóla eftir þær Rannveigu Oddsdóttir og Írisi Hrönn Kristinsdóttir. Orðaþemun eru; veðrið, umhverfið úti og útileiksvæði urðu fyrir valinu. Framfarir barnanna voru metnar með mælingum á tjáningarorðaforða og viðtökuorðaforða. \nLeitað var svara við spurningunni: \t \n \n-\tHvernig hentar námsefnið Orðaleikur til að efla orðaforða barna í gegnum leik og útikennslu? \na.\tHver er upplifun kennara á því að nota námsefnið í útikennslu? \nb.\tHvaða áhrif hefur kennslan á orðaforða barnanna? \nÖll börnin í rannsókninni höfðu svipaðan bakgrunn, þar er að segja öll tvítyngd, koma frá sama landi og öll á svipuðum aldri. Þrátt fyrir það sást einstaklingsmunur á milli barna vel í rannsókninni. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á að börn eru móttækileg fyrir markvissri orðaforðakennslu. Íhlutunin sýndi framför bæði í viðtöku- og tjáningarorðaforða barnanna. Börnin tengja betur við þau orð sem þau hafa séð og eru í þeirra nærumhverfi. Einnig sýndu niðurstöður rannsóknarinnar að tjáningarorðaforði barnanna er minni heldur en viðtökuorðaforði þeirra, bæði fyrir og eftir íhlutun. Niðurstöður þessarar rannsóknar eru í takt við aðrar rannsóknir sem hafa verið gerðar á orðaforða tvítyngdra barna. Einnig kom fram í niðurstöðunum að námsefnið Orðaleikur hentar vel í orðaforðakennslu í gegnum útinám. Íhlutunin gekk nokkuð hnökralaust en þurfti rannsakandinn að leysa ýmis ágreiningsmál, bæði á milli barnanna og á milli sín og samstarfsfólks.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7004684002
Cites: 15
Cited by: 2
Related to: 10