Work

Óskalisti eða stefnumótun? Er efling tónmenntar í grunnskólum í orði eða á borði?

Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Er efling tónmenntar í grunnskólum í orði eða á borði, er hún óskalisti eða er hún stefnumótun sem skilar árangri inn í daglegt líf grunnskólabarna? \nUmræðan um að listir og menning séu grundvallarþættir til að auðga mennta- og skólaþróun hefur eflst síðan við upphaf nýrrar aldar. Í verkefninu er stuðst við áður gerðar rannsóknir sem sýna og benda á nauðsyn og mikilvægi gildi listfræðslu í námi hvers manns og sú kenning lögð til grundvallar. Á undanförnum árum hafa verið settar fram mennta- og menningarstefnur þess efnis að listfræðsla skuli efld almennt á Íslandi, sem er í takt við erlenda þróun og rannsóknir um mikilvægi þeirra. Þannig megi mennta nemendur til aukins almenns þroska og velferðar. Þar verði stöðluð staðreyndaþekking aldrei nóg heldur þurfi að efla list- og verkfræðslu, fjölbreytta kennsluhætti og skapandi og gagnrýna hugsun. Þar sem lítið hefur komið fram eða verið rannsakað sérstaklega um framkvæmd eflingar listfræðslu á Íslandi rýnir höfundur í forsendur þessarar stefnumótunar og fyrri kenningar sem varpa skýrara ljósi á viðfangsefni rannsóknar. Hér nálgast höfundur viðfangsefni sem frumrannsókn. Höfundur ræðir við fagaðila frá öllum sviðum menntakerfisins, frá Mennta- og menningarmálaráðuneyti og inn í tónmenntastofuna, um viðhorf og mat fagfólks hvort efling tónmenntar skili sér í hið raunverulega nám á gólfinu, hvað þurfi að gera og hverjir séu þar lykilaðilar.
Source: Skemman
Author: Þórdís Sævarsdóttir 1975
Institution: Bifröst University
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7004700044
Cites: 13
Cited by:
Related to: 10