Work

„... og svo bara andsettist hún“ Andaglas á Íslandi

Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Andaglas hefur í áratugi verið stundað af ungmennum á Íslandi og er það enn í dag. Þau fara í andaglas af mörgum ólíkum ástæðum, sem leik eða skemmtun, til að fá svör við spurningum sem brenna á þeim, af forvitni eða til að upplifa spennu. Birtingarmynd í andaglass í afþreyingarefni, fjölmiðlum og flökkusögnum sem ganga manna á milli gefur oftast til kynna að andaglasið sé hættuleg skemmtun, þar sem allt geti gerst. Þegar \nungmenni fara í andaglas leitast þau við að endurskapa þá stemmningu sem birtist í þessum sögnum og öðru skemmtiefni. Andaglas er yfirleitt stundað við kertaljós í myrkri eða á næturnar, í gömlum byggingum eða jafnvel kirkjugörðum. Andaglas skapar ákveðið jaðarástand, þar sem þátttakendur opna gátt á milli heims þeirra lifandi og hinna látnu, þeir sem taka þátt í andaglasinu standa á þröskuldinum þar á milli. \nÞað ganga ekki bara sögur manna á milli um andaglas, heldur er líka miðlað margvíslegum reglum um hvernig eigi að gera það rétt. Reglurnar geta skapað þá tilfinningu að ungmennin hafi meiri stjórn á andaglasinu. Það er t.d. mikilvægt að opna gáttina yfir í andaheiminn á ákveðinn hátt og líka að loka henni aftur að leiknum loknum. Refsingin við því að \nbrjóta reglurnar í andaglasi er yfirleitt að skilin milli heimanna tveggja verða óljósari. Ungmennin sitja uppi með andann. Það er ein ástæða þess að flestir forðast að fara í andaglas heima hjá sér og kjósa að gera það annarsstaðar. Það hefur þó ekki áhrif á að herbergi ungmenna á heimavistum eru vinsæll vettvangur fyrir andaglas. \nAndaglas endurspeglar á vissan hátt hugmyndaheim þeirra sem taka þátt í því. Í andaglasi birtast til dæmis átök milli ungmenna annars vegar og heims hinna fullorðnu hins vegar, þar sem unga fólkið veitir þeim sem valdið hafa ákveðið andóf þegar þau laumast í andaglas. Í andaglasinu sjáum við líka togstreitu um trú. Andaglas hverfist í kringum efann, en spurningin um efa og trú er ein af meginundirstöðum þess. Ungmennin \nsem taka þátt velta fyrir sér hvað það er sem hreyfir glasið, hvort það sé andi eða eitthvað annað og eru þessar vangaveltur mikilvægur hluti leiksins og samskiptanna í kringum hann. Nú eru tímar vísindahyggju og það getur verið erfitt fyrir ungt fólk að viðurkenna að það sé ekki alveg tilbúið til að afneita því að það sé í raun og veru andi í glasinu.
Source: Skemman
Author: Dagrún Ósk Jónsdóttir 1993
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7004755823
Cites: 30
Cited by: 1
Related to: 10