Work

Öryggi við gjöf ópíóíða: Eftirlit hjúkrunarfræðinga með sjúklingum sem fá ópíóíða á sjúkrahúsum

Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Öndunarbæling af völdum ópíóíða er líklega alvarlegasta aukaverkun þeirra þar sem hún getur aukið líkur á hjartastoppi eða dauða. Ópíóíðar eru mikið notuð lyf til verkjastillingar á sjúkrahúsum og því er mikilvægt að koma í veg fyrir öndunarbælingu eða greina einkenni hennar snemma svo hægt sé að stöðva framgang hennar. Hjúkrunarfræðingar gegna þar lykilhlutverki en þeir geta mögulega komið í veg fyrir öndunarbælingu með því að viðhafa reglulegt eftirlit með sjúklingum sem fá ópíóíða. \nMikilvægt er að hjúkrunarfræðingar séu öruggir við notkun ópíóíða og hafi viðeigandi þekkingu á því hvernig best sé að viðhafa eftirlit með sjúklingum sem fá ópíóíða vegna hættu á öndunarbælingu. Tilgangur þessarar fræðilegu samantektar var að varpa ljósi á ráðleggingar um eftirlit hjúkrunarfræðinga með sjúklingum sem fá ópíóíða og greina frá því hvaða mælitæki hentugt er að nota til að meta slævingu og öndunarbælingu. Leitað var að rannsóknar- og tímaritsgreinum um eftirlit hjúkrunarfræðinga auk þess sem bornar voru saman niðurstöður rannsókna um ýmis mælitæki sem meta slævingu. \nNiðurstöður samantektarinnar gefa til kynna að það sé á ábyrgð hjúkrunarfræðinga að viðhafa reglulegt eftirlit með sjúklingum sem fá ópíóíða. Hjúkrunarfræðingar ættu að meta alla sjúklinga sem fá ópíóíða með tilliti til öndunar og slævingar auk þess sem æskilegt er að hjúkrunarfræðingar meti áhættuþætti fyrir öndunarbælingu. Alls fundust fimm mælitæki sem notuð eru til að meta slævingu sjúklinga af völdum ópíóíða. Þar af höfðu þrjú mælitæki staðfest réttmæti og áreiðanleika, POSS, RASS og MRPSS. Samkvæmt niðurstöðum rannsókna virðist POSS mælitækið áreiðanlegast og voru hjúkrunarfræðingar almennt ánægðastir með það. Þörf er á verklagsreglum hér á landi svo eftirlit með sjúklingum sem fá ópíóíða verði skilvirkara. Einnig er þörf á aukinni vitundarvakningu um ábyrgð hjúkrunarfræðinga að viðhafa reglulegt eftirlit sem byggt er á gagnreyndri þekkingu. \nLykilorð: Öndunarbæling, ópíóíðar, mat, eftirlit og hjúkrun
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7004944649
Cites: 52
Cited by:
Related to: 10