Próffræðilegir eiginleikar íslenskrar útgáfu BRIEF matslistans
Year: 2012
Type: dissertation
Abstract: Stýrifærni (Executive function) er margþátta hugtak sem lýsir ákveðnum ferlum í starfsemi heilans, en þessi ferli eru afar mikilvæg einstaklingnum til þess að stýra markvissri hegðun. Slök stýrifærni spilar stórt hlutverk hjá börnum með ADHD en einnig hjá börnum með raskanir á borð við einhverfu, Tourette, geðhvarfasýki o.fl. Hingað til hefur enginn matslisti verið til á Íslandi til þess að mæla skerta stýrifærni í börnum. BRIEF (Behavior Rating Inventory of Executive Function) er bandarískur spurningalisti fyrir foreldra og kennara og er ætlaður til að meta stýrifærni hjá börnum á aldrinum 5-18 ára. Listinn hefur að geyma átta undirþætti; undirþættirnir hvatvísi, fastheldni og tilfinningastjórn mynda saman eitt heildarskor fyrir yfirþáttinn Hegðunarstjórn en undirþættirnir frumkvæði, vinnsluminni, skipulag, skipulag efnis og yfirsýn mynda saman heildarskor fyrir yfirþáttinn Hugræn færni. Þessi spurningalisti hefur verið þýddur yfir á íslensku og er markmið þessarar rannsóknar að athuga próffræðilega eiginleika íslenskrar útgáfu listans og athuga hvort um sömu þáttabyggingu sé að ræða. Listinn var lagður fyrir þátttakendur ásamt öðrum matslista (Spurningar um styrk og vanda (SDQ)) svo hægt væri að meta viðmiðsréttmæti hans. Þátttökubeiðni var send til foreldra 646 barna í 4. til 7. bekk í fjórum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. Foreldrar 264 barna tóku þátt í rannsókninni. Börnin voru send heim með umslag með öllum eyðublöðum og upplýsingum um rannsóknina. Listarnir voru fylltir út á heimilum þátttakenda og sendir með börnunum aftur í skólann þar sem kennarar sáu um að safna saman gögnunum. Framkvæmd var leitandi þáttagreining og innri samkvæmni, endurprófunaráreiðanleiki og viðmiðsréttmæti voru metin. Niðurstöður voru þær að ekki er um sömu þáttabyggingu að ræða og í bandarískri útgáfu listans. Bandaríski listinn inniheldur átta þætti en sá íslenski aðeins fimm; hugræn færni, tilfinningastjórn, hvatvísisstjórn, skipulag efnis og aðlögunarhæfni. Innri samkvæmni listans mældist hærri en fyrri rannsóknir hafa sýnt fram á (0,98), endurprófunaráreiðanleiki var nokkuð slakur (r = 0,46) en í samanburði við matslistann SDQ virðist viðmiðsréttmæti BRIEF vera nokkuð gott. Úrtaksstærð uppfyllti ekki skilyrði til þáttagreiningar og verður því að túlka þessar niðurstöður með fyrirvara. Mikilvægt er að leggja listann fyrir í stærra úrtaki og endurtaka þáttagreiningu hans áður en hægt er að halda lengra með þróun hans.
Source: Skemman
Author: Rakel Kristinsdóttir 1985
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7005394269
