Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Væntanlegur ávinningur verkefnisins var að kanna hvort það sé tækifæri fyrir Íslendinga að veiða og nýta rauðátu, borið saman við heildarmynd rauðátuveiða og nýtingar í Noregi. \n\tRauðáta er 4 millimetra krabbadýr sem finnst í Norður-Atlantshafi og tilheyrir hún dýrasvifi í hafinu. Í kringum Ísland er áætlað að magn rauðátu sé í kringum 7 milljónir tonna. Hún gegnir lykilhlutverki í vistkerfi hafsins og hefur ekkert verið veidd eða nýtt hér á landi. Í Noregi hafa verið stundaðar tilraunaveiðar á rauðátu í mörg ár og hafa verið unnar úr henni afurðir sem bæði eru nýttar í fiskeldisfóður og til manneldis. \n\tEftirspurn eftir afurðum fiska er stöðugt að aukast samhliða fólksfjölgun í heiminum og eru menn að leitast eftir öðrum tegundum sem hafa ekki verið nýttar nema að mjög litlu leyti. Rannsóknir hafa verið gerðar á þangi, þörungum sem og dýrasvifi og er nýting á rauðátu talinn góður möguleiki vegna innihaldsríkra næringarefna sem má finna í henni. Rannsóknir sýna fram á að mikið magn er af rauðátu í kringum Ísland og þá sérstaklega sunnan við landið. Þar er sjórinn heitari og þroskaferli rauðáta tekur styttri tíma, til að mynda finnast þar tvær kynslóðir á hverju ári. Miðað við magnið sem finnst af rauðátu á þessum svæðum og í hve mikilli nálægð hún er við hafnir og vinnslustöðvar er góður möguleiki á að veiða og jafnvel framleiða rauðátu hér á Íslandi. \n \n \nLykilorð: Rauðáta, líffræði, veiðar, vinnsla, nýting
Source: Skemman
Author: Brynja Rut Halldórsdóttir
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Aquatic Science
Domain: Life Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7005419951
