Reynsla íslenskra kvenna af því að greinast með fjölblöðrueggjastokkaheilkenni (PCOS) : áhrif sjúkdóms á geðheilbrigði og viðhorf þeirra til heilbrigðisþjónustu
Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Útdráttur \nBakgrunnur: Erlendar rannsóknir sýna að reynsla kvenna, sem greinast með fjölblöðrueggjastokkaheilkenni (e. polycystic ovary syndrome) (PCOS), af heilbrigðisþjónustu er ófullnægjandi. Eins hafa rannsóknir sýnt að PCOS geti haft skaðleg áhrif á geðheilbrigði og lífsgæði þessara kvenna. \n\tTilgangur: Að kanna viðhorf og reynslu kvenna með PCOS af heilbrigðisþjónustu og áhrif sjúkdóms á geðheilbrigði þeirra. \n\tAðferð: Eigindleg rannsóknaraðferð með fyrirbærafræðilegri nálgun og hentugleikaúrtaki. Gögnum var safnað með viðtölum við 20 konur greindar með PCOS á tímabilinu janúar-september 2020. Við greiningu gagna var notuð aðferð Colaizzi sem byggir á sjö meginþrepum gagnagreiningar í fyrirbærafræðilegum rannsóknum. \n\tNiðurstöður: Þátttakendur voru á aldursbilinu 20–48 ára. Helstu niðurstöður sýndu að of langur tími gat liðið áður en rétt greining var staðfest og aukin fræðsla og skilningur var lykillinn að bættri heilsu. Þátttakendur lýstu kvíða og þunglyndiseinkennum, áhyggjum af ófrjósemi, skertri líkamsímynd og minni samfélagslegri þátttöku. Niðurstöður leiddu í ljós eftirfarandi fjögur meginþemu: 1) Takmörkuð heilbrigðisþjónusta, 2) Mikilvægi greiningar, fræðslu og upplýsinga 3) Áhrif PCOS á geðheilbrigði, 4) Áhrif PCOS á samfélagslega þátttöku. Hvert meginþema samanstóð af nokkrum undirþemum. \n\tÁlyktanir: Niðurstöður benda til þess að bæta þurfi heilbrigðiþjónustu við konur með PCOS og veita í auknum mæli einstaklingsbundna þjónustu sem einkennist af samkennd og virðingu. Niðurstöður sýna einnig að áhrif PCOS á geðheilbrigði kvenna og samfélagslega þátttöku kalla á aukinn stuðning, fræðslu og leiðsögn við konur með þennan sjúkdóm. \n \nLykilorð: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni, PCOS, geðheilbrigði kvenna, heilsa kvenna, heilbrigðisþjónusta, lífsgæði, líkamsímynd, fyrirbærafræði, sjö þrepa gagnagreining Colaizzi, eigindleg rannsókn.
Source: Skemman
Author: Rakel Birgisdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Reproductive Medicine
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7005658757
