Work

Samspil persónuleika og litbrigða. Áhrif vegglitar á sálfræðilega endurheimt hjá innhverfum og úthverfum

Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Ýmislegt þarf að hafa í huga þegar áhrif lita eru könnuð. Með mælitækjum sálfræðilegrar endurheimtar voru áhrif vegglita í hvíldarrými á vinnustað mæld. Bornar voru saman sex myndir af sama rýminu sem hver hafði sinn vegglit með grænleitu litrófi, sem þátttakendur (N = 267) mátu. Síðan var þeim skipt í tvo mismunandi hópa eftir því hvar þeir mældust á rófi úthverfu og innhverfu og mat þeirra hópa borið saman. Breyturnar sem voru mældar voru „líkur á endurheimt”, ,,hrifning”, ,,fjarvera” og ,,dálæti” sem allar hafa mikla fylgni sín á milli og skýra part af ferli sálfræðilegrar endurheimtar. Niðurstöðurnar sýndu að munur var á mati einstaklinga á rýminu eftir vegglit á öllum breytunum. Einnig fannst persónuleikamunur þar sem úthverfir mátu gulgrænan betur en þeir innhverfu gerðu í öllum breytum. Þær upplýsingar benda til þess að vanda þarf vel litaval á vinnustöðum sem og öðru umhverfi sem fólk dvelur í.
Source: Skemman
Author: Rakel G. Brandt 1990
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7005727386
Cites: 28
Cited by:
Related to: 10