Work

Samvera foreldra og leikskólabarna : áhrif langrar leikskóladvalar og vinnutíma foreldra á leikskólabörn

Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Samvera foreldra og barna er takmörkuð í nútímasamfélagi og jafnvel minni en æskilegt er. Stór hluti dagsins hjá foreldrum fer í vinnu og þann tíma eru börnin í leikskólanum. Í dag er algengt að leikskólabörn séu í leikskólanum í átta klukkustundir eða lengur á degi hverjum og hefur fjöldi barna sem dvelur lengi í leikskóla fjölgað töluvert síðastliðin 20 ár. Langur vinnutími foreldra og löng dvöl barna í leikskólum kemur niður á samveru foreldra og barna. Markmið þessarar ritgerðar er að svara rannsóknarspurningunni: Hvaða áhrif hefur löng leikskóladvöl barna og langur vinnutími foreldra á leikskólabörn? Ritgerðin er fræðileg heimildaritgerð þar sem stuðst er við fyrirliggjandi rannsóknir og tölulegar upplýsingar. Niðurstöður ritgerðarinnar sýna að leikskóladvöl og löng fjarvera barna frá foreldrum getur haft áhrif á börnin. Börn geta fundið fyrir streitu eftir langa leikskóladaga sem getur verið skaðleg til lengri tíma ef ekki eru gerðar viðeigandi ráðstafanir. Því er mikilvægt að leita leiða til að tryggja fleiri samverustundir foreldra og barna sem gæti meðal annars falist í styttri vinnuviku.
Source: Skemman
Author: Karen María Magnúsdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7005736581
Cites: 21
Cited by:
Related to: 10