Work

Sáttamiðlun: Félagsráðgjafinn sem sáttamiðlari

Year: 2010
Type: dissertation
Abstract: Síðastliðin ár hefur úrræði er kallast sáttamiðlun rutt sér leið í refsivörslukerfinu víða í hinum vestræna heimi. Sáttamiðlun byggir á hugmyndafræði uppbyggilegrar réttvísi sem fyrst kom fram á sjónarsviðið í nútímalegri mynd á áttunda áratug síðustu aldar. Þrátt fyrir góðan árangur og talsverðar vinsældir hjá nágrannaþjóðum okkar þá náði úrræðið ekki að ryðja sér til rúms hér á landi fyrr en snemma á þessari öld. Ritgerð þessi fjallar um almenna notkun sáttamiðlunar sem úrræðis í málum afbrotamanna ásamt notkun þess til að leysa úr ágreiningsmálum. Varpað er ljósi á sáttamiðlun á Íslandi, Norðurlöndunum, í Bandaríkjunum og Kanada, framkvæmd þessara landa og sögu sáttamiðlunar í löndunum. Starf sáttamiðlarans fær ítarlega umfjöllun með sérstakri áherslu á félagsráðgjafa í starfi sáttamiðlara en rannsóknir hafa sýnt fram á að þátttakendur sáttamiðlunar vilja virðingarfulla, þolinmóða og skilningsríka sáttamiðlara. Þetta gefur á margan hátt til kynna að félagsráðgjafar séu vel til þess fallnir að starfa sem sem sáttamiðlarar. Sáttamiðlun í málum ungra gerenda afbrota virðist gefa góða raun, gerendurnir iðrast og bera frekar ábyrgð á gjörðum sínum með þessum hætti sem sést vel á þeim tilraunaverkefnum sem hafa verið hér á landi og þeim skýrslum sem gefnar hafa verið út.
Source: Skemman
Author: Oliver Bjarki Ingvarsson 1984
Language: Icelandic
Subfield: Law
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7005817802
Cites: 6
Cited by:
Related to: 10