Work

Samskiptahneigð og árangur fyrirtækja

Year: 2013
Type: dissertation
Abstract: Breytingar í samskiptatækni og samskiptaháttum hafa aukið möguleika fyrirtækja á að eiga í samskiptum við viðskiptavini sína. Stjórnun samskipta er auðlind sem stuðlar að samkeppnisforskoti í gegnum færni fyrirtækja. Samskiptahneigð er færni fyrirtækja til að eiga hvers konar samskipti við viðskiptavini og hagnýta sér upplýsingar frá þeim með árangursríkum hætti í því skyni að skapa arðbært viðskiptasamband. \nTilgangur rannsóknar höfundar var að kanna hver tengslin væru á milli samskiptahneigðar og árangurs hjá íslenskum fyrirtækjum. \nGerð var megindleg rannsókn með rafrænni spurningakönnun sem send var á 737 netföng stjórnenda fyrirtækja á Íslandi með fleiri en 10 starfsmenn. Við úrvinnslu var notast við 151 nýtanleg svör. \nHelstu niðurstöður rannsóknarinnar voru að tengsl eru á milli samskiptahneigðar og árangurs sem tengist ánægju viðskiptavina og árangurs sem tengist hagnaði fyrirtækja. Einnig kom í ljós að ánægja viðskiptavina hefur tengsl við hagnað fyrirtækja óháð stærð eða á hvaða markaði þau starfa. Samskiptahneigð fyrirtæki geta vænst þess að hagnast meira en keppinautar þeirra.
Source: Skemman
Author: Haraldur Ársælsson 1978
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7005848836
Cites: 168
Cited by:
Related to: 10