Smáforrit í leikskóla: Undirbúningur fyrir læsi
Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Notkun spjaldtölva við kennslu hefur stóraukist í leik- og grunnskólum hér á landi. Þrátt fyrir þessa miklu aukningu og ört vaxandi tækniþróun er lítið sem ekkert til af rannsóknum á árangri þjálfunar með gagnvirkri kennslu í formi smáforrita. Á leikskólaaldri er lagður mikilvægur grunnur að námi í lestri og ritun þar sem börn öðlast skilning á tilgangi og mikilvægi ritmáls. Í ljósi breyttra tíma og hraðrar tækniþróunar er mjög mikilvægt að skoða vel gagnsemi þessarar nálgunar við kennslu og undirbúning fyrir læsi. \nSmáforritin Lærum og leikum með hljóðin og Froskaleikir Hoppa hafa verið notaðir í markvissri kennslu í tveimur leikskólum hér á landi. Markmið þessa verkefnis er að skoða hvort markviss kennsla með það að markmiði að undirbúa læsi með gagnvirkri kennslu í formi smáforrita, skili börnum betur undirbúnum fyrir læsi í grunnskólann. Þátttakendur voru 78 börn fædd árið 2009 sem hófu nám í fyrsta bekk grunnskóla haustið 2015. Börnin í rannsóknarhópi voru 43 og koma þau af tveimur leikskólum sem unnið hafa markvisst með smáforritin. Til samanburðar voru 35 sem koma af þremur leikskólum sem ekki hafa unnið markvisst með ofangreind smáforrit. Öll börnin ganga í skóla þar sem Leið til læsis lestrarkerfið er í notkun og voru niðurstöður staðlaða lesskimunarprófsins Leið til læsis lesskimun notaðar til að bera hópana saman. \nNiðurstöður sýndu fram á að börn í rannsóknarhópi mælast með aukna færni í hljóðkerfis- og hljóðavitund og bókstafa- og hljóðaþekkingu á Leið til læsis. Ekki kom fram munur á milli rannsóknarhóps og viðmiðunarhóps á málskilningi og orðaforða. Einnig var skoðað hvort aðgangur barnanna í rannsóknarhópi að smáforritunum heima hefði áhrif á frammistöðu þeirra á Leið til læsis. Niðurstöður sýndu að ekki var munur á þeim börnum sem höfðu aðgang að smáforritunum heima tvisvar í viku eða oftar og þeim sem höfðu aðgang að þeim sjaldnar en tvisvar í viku.
Source: Skemman
Author: Auður Ævarsdóttir 1983
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7005950882
