Work

Stopull starfsframi. Um starfsframa maka íslenskra sendierindreka

Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Starfsfólk utanríkisþjónustu lýtur lögbundinni flutningsskyldu í starfi sínu og þarf af þeim sökum að flytja sig reglulega á milli starfspósta heima og erlendis. Maki hins útsenda starfsmanns fylgir í flestum tilfellum með á póst og þarf þá að gera ráðstafanir, bæði fyrir og eftir flutning, vegna síns eigin starfs. \nMarkmið þessarar rannsóknar var að kanna afstöðu maka íslenskra sendierindreka til eigin starfsframa. \nAukin atvinnuþátttaka kvenna á undanförnum áratugum hefur leitt til mikilla samfélagsbreytinga og í hinum vestræna heimi er nú sjálfsagt að hjón vinni bæði úti og eigi jafna möguleika á starfsframa. Hefur þessi þróun haft töluverð áhrif innan utanríkisþjónusta, sem löngum hafa einkennst af hefðbundnum kynjahlutverkum. Í rannsókninni var því lögð áhersla á breyttar aðstæður í utanríkisþjónustum, þar sem hin gamla sýn á hefðbundið hlutverk maka/eiginkonu á erlendri starfsstöð sem ólaunaður stuðningsaðili við störf sendierindrekans er að víkja fyrir nýrri sýn sem tekur til maka, óháð kyni, sem sinnir sínum eigin starfsframa eða atvinnuþátttöku. Þannig virðist hin hefðbundna og lífseiga sýn á starf innan utanríkisþjónustu sem starf og frama beggja, sendierindreka og maka, vera að líða undir lok, með aukinni atvinnuþátttöku makanna. \nRannsóknir hafa leitt í ljós að makar í utanríkisþjónustu eru alla jafna vel menntaðir einstaklingar sem vilja hlúa að sínum eigin starfsframa. Leiðir þetta til togstreitu sem verður þess valdandi að makar verða ólíklegri til að vilja gefa frama sinn upp á bátinn til að fylgja starfsmanni utanríkisþjónustu á póst. Þannig færist sífellt í aukana að hæfir einstaklingar sækist síður eftir starfi í utanríkisþjónustu ef það setur starfsframa maka þeirra í hættu. \nGerð var eigindleg rannsókn, þar sem tekin voru viðtöl við átta einstaklinga sem allir deildu þeirri lífsreynslu að vera vera giftir flutningsskyldum starfsmönnum í utanríkisráðuneyti Íslands og að hafa flutt búferlum vegna þess starfs. Ræddar voru áskoranir sem fylgja tíðum búferlaflutningum og áhrif starfs í utanríkisþjónustu á starfsframa viðmælenda. \nNiðurstöður leiddu í ljós að makarnir höfðu fremur jákvæða afstöðu til starfsframa síns, á þeim tímapunkti er viðtölin voru tekin, en hinsvegar mátti merkja ugg vegna þeirra áhrifa er tíðir flutningar gætu haft á starfsframa þeirra í framtíðinni. Kom í ljós að starfsframi tveggja viðmælenda gæti verið í hættu ef til frekari flutninga kæmi. Það er í samræmi við aðrar niðurstöður í rannsókninni og erlendar rannsóknir sem sýna að sífellt verður algengara að starfsframi maka hafi áhrif á starfsmenn utanríkisþjónustu.
Source: Skemman
Author: Berglind Laufey Ingadóttir 1973
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7006070885
Cites: 20
Cited by:
Related to: 10