Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Tilgangur: Tíðni verkja hjá börnum og unglingum hefur aukist og talið er að hluta þess megi rekja til breyttra lifnaðarhátta. Tengsl milli verkja og hreyfingar hafa lítið verið rannsökuð hérlendis, en erlendis sýna rannsóknir að ráðlögð hreyfing geti dregið úr verkjum en of mikil hreyfing og hreyfingarleysi geti leitt til hærri tíðni verkja. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvort tengsl væru milli verkja og hreyfingar annars vegar og verkja og hreyfingarleysis hins vegar hjá íslenskum skólabörnum. \nAðferð: Stuðst var við gögn úr könnuninni Heilsa og lífskjör skólanema frá 2009. Alls svöruðu 11.602 nemendur í 6., 8. og 10. bekk könnuninni og var svarhlutafallið 87% á landsvísu. Breyturnar sem notast var við voru; kyn, bekkjarárgangur, verkur (hversu oft í viku), hreyfing (létt/mikil) og hreyfingarleysi (kyrrseta í <2/>3 tíma).\t \nNiðurstöður: Börn sem stunduðu ráðlagða létta hreyfingu upplifðu síður verki en börn sem hreyfðu sig ekki. Hærra hlutfall var meðal barna sem upplifðu þrjár tegundir verkja á viku (15,3%) og hreyfðu sig ekki heldur en hjá börnum sem voru verkjalaus (6,7%). Svipað hlutfall var meðal barna sem hreyfðu sig mikið 2-3 sinnum í viku og upplifðu verki vikulega eða oftar (26-34%) og hjá börnum sem hreyfðu sig á hverjum degi (24-30%). Hærri tíðni var á verkjaupplifun barna sem sátu í þrjá tíma eða meira á dag en lítill munur var hversu margar tegundir verkja börn upplifðu eftir því hve lengi þau sátu. Fylgni milli hreyfingar/hreyfingarleysis og verkja var í öllum tilfellum veik en þó marktæk (p<0,001). \nÁlyktun: Samkvæmt niðurstöðum má álykta að veik tengsl eru milli hreyfingar/hreyfingarleysis og verkja hjá börnum. Ráðlögð hreyfing virðist hafa jákvæð áhrif á verki hjá börnum og mikil hreyfing hefur ekki áhrif. Börn sem hreyfa sig lítið eða stunda mikla kyrrsetu upplifa frekar verki en önnur börn en það hefur ekki áhrif á fjölda verkja. \n \nLykilorð: verkir, hreyfing, hreyfingarleysi, kyrrseta, börn, unglingar, HBSC
Source: Skemman
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Physical Activity and Health
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7006136282
