Year: 2019
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Tilgangur þessarar rannsóknar var að skoða starfsánægju framhaldsskólakennara á Íslandi. Starfsánægja er talin vera mikilvægur þáttur í lífi og starfi einstaklinga og hún hefur verið mikið rannsökuð meðal vísindamanna. Hún er talin hafa áhrif á velgengni fyrirtækja og því er mikilvægt að stjórnendur átti sig á hvaða þættir skipta máli til að viðhalda eða auka starfsánægju. Markmið með rannsókninni var að skoða almenna starfsánægju framhaldsskólakennara. Einnig voru skoðuð tengsl milli starfsánægju og starfsaðstæðna, streitu, samskipta og einnig var mikil áhersla lögð á viðhorf kennara til stjórnenda skólanna. Þá var kynbundinn munur skoðaður og hvort það væri munur á starfsánægju kvenna og karla. Notast var við megindlega aðferðafræði til að ná fram markmiðum rannsóknarinnar. Spurningalisti var sendur út til framhaldsskólanna og Félag framhaldsskólakennara lagði rannsókninni lið og sendi spurningalistann út til félagsmanna sinna. Rannsóknin fór fram haustið 2018. \nHelstu niðurstöður rannsóknarinnar gáfu til kynna að framhaldsskólakennarar séu almennt ánægðir í starfi og að tengsl séu á milli starfsánægju og starfsaðstæðna, samskipta og streitu. Ekki reyndist vera marktækur kynbundinn munur á starfsánægju karla og kvenna. Almennt voru kennarar nokkuð ánægðir með stjórnendur skólanna en þó eru atriði sem mætti bæta og því er mikilvægt að stjórnendur séu meðvitaðir um líðan starfsfólks.
Source: Skemman
Author: Hildur Þorsteinsdóttir 1987-
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Keywords: job satisfaction, upper secondary school teachers, work attitudes, workplace conflict, school principals, gender differences in job satisfaction, principal-teacher relations, teacher professional development, teacher well-being, teacher burnout, teacher stress, teacher self-efficacy, teacher confidence, teacher self-determination, teacher autonomy
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7006206513
