Work

Tengsl vímuefnaneyslu unglinga við fjölda vina þeirra sem neytt hafa sömu vímuefna

Year: 2014
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Vímuefnaneysla unglinga hefur verið mikið rannsökuð og niðurstöður sýna að megin áhættuþáttur neyslu þeirra sé fólkið í þeirra nánasta umhverfi, þá sérstaklega vinir. Unglingar sem eiga vini með jákvæðar skoðanir á vímuefnaneyslu eða neyta þessara efna sjálf, eru líklegri en aðrir til að sjálfir prófa þessi efni. ESPAD spurningalistinn, sem var hannaður til þess að rannsaka vímuefnaneyslu unglinga í Evrópu, var lagður fyrir nemendur 10.bekkjar í öllum grunnskólum landsins. Í þessari rannsókn var þetta skoðað með því að bera saman tíðni neyslu unglinga á kannabis, svefnlyf og róandi lyf, alsælu og sniffefni við fjölda þeirra vina sem þeir telja neyta sömu efna ásamt því að skoða hvort að einhver munur er á milli kynja á því efni. Einnig var athugað hvort samband væru milli aðgengi unglinga að þessum vímuefnum og fjölda vina sem þeir töldu sig eiga sem neytt hefðu þessara efna. Niðurstöður bentu til þess að jákvæð tengsl væru á milli tíðni vímuefnaneyslu nemendanna og fjölda vina sem þeir töldu hafa prófað sömu efni. Það voru fleiri strákar en stelpur sem neytt höfðu allra vímuefnanna fyrir utan svefnlyfja og róandi lyfja þar voru stelpurnar fleiri. Lítið hlutfall nemenda töldu sig geta nálgast vímuefnin þrátt fyrir að telja sig ekki þekkja neinn sem hafði prófað þau. Það væri athyglisvert að rannsaka frekar hvaðan unglingar eru að fá vímuefnin og hvers vegna munur var á milli kynjanna þegar kemur að neyslu.
Source: Skemman
Author: Guðrún Lena Þorsteinsdóttir 1987
Language: Icelandic
Subfield: Epidemiology
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7006222445
Cites: 43
Cited by:
Related to: 10