Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Margir telja að ef mannkynið byggi yfir meiri samlíðan væri heimurinn friðsælli staður, laus við fordóma og mismunun. Ekki eru þó allir sammála um það hvað samlíðan er en í sálfræðilegum rannsóknum er yfirleitt talað um tvo þætti samlíðan, hugræna samlíðan og tilfinningalega samlíðan. Í hugrænni samlíðan felst að áhorfandi ímyndar sér hvernig sé að vera í aðstæðum þolanda og hvaða tilfinningar þolandi upplifi í þeim aðstæðum. Í tilfinningalegri samlíðan felst að áhorfandi upplifir sjálfur tilfinningar sem viðbragð við tilfinningalegu ástandi þolanda. Vísbendingar eru um að mögulegt sé að auka hugræna samlíðan og hafa þjálfunaráætlanir verið hannaðar með það að markmiði. Samlíðan hefur jafnframt verið tengd minnkun fordóma og hjálparhegðun. Einnig er þó þekkt að einstaklingar eiga auðveldara með að upplifa samlíðan með sínum innhóp og þeim sem þeir eiga eitthvað sameiginlegt með og getur þetta leitt til mismununar. Rætt verður um samlíðan í nútíma samfélagi og þýðingu samlíðan í baráttu gegn fordómum og mismunun.
Source: Skemman
Author: Rakel Gyða Pálsdóttir 1989
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7006244491
