Work

Taugalífeðlisleg áhrif núvitundar : niðurstöður myndgreiningarannsókna

Year: 2015
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Áhugi á núvitundarmiðuðum inngripsaðferðum hefur aukist á síðastliðnum áratugum en þær hafa að miklu leyti verið nýttar til að draga úr streitu, stuðla að vellíðan og meðhöndla langvarandi sjúkdóma, ásamt því að gagnast í meðferð geðsjúkdóma. Á undanförnum árum hafa framfarir í taugavísindunum leitt til aukins skilnings á uppbyggingu og starfsemi heilans og myndgreiningarannsóknir hafa í auknum mæli beinst að taugalíffræði meðvitundar. Rannsakendur leitast nú eftir því að leiða í ljós hvaða undirliggjandi taugalífeðlisleg ferli eru að baki iðkunar á núvitund og hvort núvitundariðkun hafi áhrif á sveigjanleika heilans. Tilgangur þessarar yfirlitsgreinar var að varpa ljósi á taugalífeðlisleg áhrif núvitundar á formgerð og virkni heilans en lögð var áhersla á niðurstöður MRI og fMRI myndgreiningarrannsókna. Þrír gagnagrunnar voru notaðir við kerfisbundna leit að rannsóknum sem lýstu áhrifum núvitundarþjálfunar á taugastarfsemi og byggingu heilans. Allar 26 rannsóknirnar sem leitin skilaði sýndu fram á áhrif núvitundarþjálfunar á formgerð og/eða virkni heilans. Tuttugu fMRI rannsóknir leiddu í ljós að núvitundariðkun hefði áhrif á og tengsl við virkni í möndlu, fremri og aftari gyrðilsberki, eyjarblöðum og ýmsum framheila-, hvirfilblaða- og skynsvæðum heilans. Sjö MRI rannsóknir bentu til þess að núvitundarþjálfun hefði áhrif á formgerð heilans, þá sérstaklega á þéttleika og rúmmáli gráa efnis í möndlu, eyjarblöðum, dreka, skynberki og rófukjarna. Niðurstöðurnar veita innsýn í þau taugalífeðlislegu ferli sem núvitundariðkun hefur í för með sér þrátt fyrir ýmsar takmarkanir á aðferðum rannsóknanna. Gefið er til kynna að inngripsaðferðir byggðar á núvitund geti dregið úr ýmsum geðrænum einkennum, ásamt því að nýtast þeim sem þjást af taugahrörnunarsjúkdómum. Einnig benda niðurstöður til þess að iðkun á núvitund hafi jákvæð áhrif á hugræna getu og lífsgæði einstaklinga almennt.
Source: Skemman
Author: Caroline Patricia Simm
Language: Icelandic
Subfield: Neurology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7006265227
Cites: 74
Cited by: 1
Related to: 10