Work

Tíðni mótþróaþrjóskuröskunar, þunglyndis og kvíða meðal íslenskra barna með greininguna ADHD

Year: 2012
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Fylgikvillar ADHD eru margir, en þrír þeir algengustu meðal barna með ADHD eru mótþróaþrjóskuröskun (Oppositional Defiant Disorder), þunglyndi (Depressive Disorders) og kvíði (Anxiety Disorders). Markmið þessarar rannsóknar var að athuga tíðni þessara tilteknu fylgikvilla á Íslandi, ekki aðeins vegna hversu mikið þeir hafa verið rannsakaðir og hversu há tíðni þeirra er erlendis, heldur einnig vegna þess að lítið er um faraldsfræðilegar rannsóknir á íslenskum börnum. Þátttakendur í rannsókninni voru börn greind með ADHD og foreldrar þeirra. Foreldrarnir voru 197 talsins og börnin 112 talsins. Börnin voru á aldrinum 8-15 ára. Meirihlutinn voru drengir eða um 70%. Foreldrar svöruðu Mótþróakvarðanum og börnin svöruðu MASC og CDI sjálfsmatskvörðunum. Alls voru 19,3% þátttakenda með einkenni mótþróaþrjóskuröskunar yfir klínískum mörkum á heildarstigum Mótþróakvarðans, samkvæmt svörum foreldra. Alls voru 41,96% þátttakendanna yfir klínískum mörkum á heildarskori MASC kvarðans og 21,43% voru yfir klínískum mörkum á heildarskori CDI kvarðans. Tíðni þunglyndis meðal barna með ADHD var svipuð og tilgreind er í erlendum rannsóknum en tíðni kvíða var hærri og tíðni mótþróaþrjóskuröskunar mun lægri. Aðeins einn þátttakandi var yfir klínískum mörkum á öllum þrem kvörðunum. Sjö þátttakendur voru bæði yfir klínískum mörkum á heildarstigum Mótþróakvarðans og heildarskori MASC kvarðans. Tveir þátttakendur voru bæði yfir klínískum mörkum á heildarstigum Mótþróakvarðans og heildarskori CDI kvarðans og loks voru átta þátttakendur bæði yfir klínískum mörkum á heildarskorum MASC og CDI kvarðana. Talið var að fleiri þátttakendur myndu vera yfir klínískum mörkum í tveimur eða fleiri kvörðum vegna algengi þess í erlendum rannsóknum. Hlutfallslega fleiri stúlkur voru yfir klínískum mörkum á heildarstigum Mótþróakvarðans og heildarskori CDI kvarðans. Það átti ekki við um einkenni kvíða. Munur var á meðalskori drengja og stúlkna þar sem meðalskor stúlkna var hærra á CDI kvarðanum en meðalskor drengja var hærra á MASC kvarðanum. Ekki var munur á meðalskorum kynjanna í Mótþróakvarðanum. Enginn munur var á meðalskori þátttakenda eftir aldri né uppruna greiningar. Loks, var ekki skörun meðal einkenna mótþróaþrjóskuröskunar og kvíða, þar sem einkenni mótþróaþrjóskuröskunar skýrðust ekki af einkennum kvíða. Há tíðni fylgikvilla meðal barna með ADHD kallar á skimun fyrir þeim, aukna þekkingu og viðeigandi úrræði.
Source: Skemman
Author: Guðlaug Marion Mitchison 1983
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7006292040
Cites: 128
Cited by:
Related to: 10