Work

Towards sustainable land reclamation : utilization of plant growth-promoting bacteria to enhance birch growth in eroded Icelandic soil

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Íslensk náttúra, drifin af eldvirkni og norðurslóða veðráttu, einkennist aðallega af eldfjallajörð. Þrátt fyrir að vera oft næringarrík, þá er hún viðkvæm fyrir rofi sem leiðir meðal annars til myndunar á sandauðnum en þær eru útbreiddar um allt land. Rannsóknir hafa sýnt fram á mikilvægi bakteríusamfélaga og þá sérstaklega í jarðvegi. Þar virðast þau stjórna mikilvægu jafnvægi moldarinnar og geta haft áhrif á vöxt gróðurvistar í sandauðnum. Markmið þessarar rannsóknar var að meta vaxtarörvandi áhrif íslenskra jarðvegsbaktería á plöntur (plant growth-promoting bacteria – hér eftir PGPB), þá sérstaklega birki (Betula pubescens), til að nýta í uppgræðslu íslenskra sandauðna. \nVerkefninu er skipt í tvo hluta, annars vegar könnun þekktra eiginleika jarðvegsbaktería sem hafa áhrif á vöxt plantna og hins vegar sannprófun niðurstaðna á ungum birkitrjám. Þekktir vaxtarörvandi þættir á \nborð við framleiðslu plöntuhormóna (t.d. indole-3-acetic acid), frumuboða, niturbindingu og nýtingu ólífræns fosfats voru kannaðir í jarðvegsbakteríum einangruðum úr íslenskri mold. Í seinni hluta verkefnisins voru þrír stofnar valdir og notaðir til að kanna áhrif þeirra á vöxt ungra birkiplantna. Birkiplöntur voru gróðursettar í jarðvegi frá Hólasandi með viðbættum bakteríustofnum og ástand plantanna metið eftir 16 vikna vaxtartímabil. Plöntur með viðbættum jarðvegsbakteríum, virtust heilbrigðari og í sumum tilfellum \nbetur varðar gegn ryðsvepp sem finnst gjarnan í plöntum hérlendis. Þessar niðurstöður benda til að nýting jarðvegsbaktería sem umhverfisvænan lífáburð í uppgræðslu sandauðna á Íslandi er raunverulegur möguleiki sem vert er að skoða.
Source: Skemman
Author: Kolfinna Ólafsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Plant Science
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7006298750
Cites: 223
Cited by:
Related to: 10